Glansverkstæði í Reykjavík
Schedule
Thu May 21 2026 at 07:30 pm to 10:30 pm
UTC+00:00Location
Hraunbæ 123 | Reykjavík, RE
Advertisement
Við eigum öll þetta eina par af skóm – þá sem passa fullkomlega en eru farnir að láta á sjá og missa sjarmann. Í stað þess að láta hlutina safna ryki, bjóðum við þér á Glansverkstæðið, vinnustofu þar sem litir, glans og endurnýting mætast.Á þessari 3-4 klukkustunda vinnustofu lærirðu að að umbreyta skóm úr leðri eða gervileðri í litríkar og glansandi gersemar með málmfólíum (imitation gold foils).
Við hverju máttu búast?
Litríkt handverk: Þú lærir raunveruleg handbrögð við skapandi uppskrúfun.
Létt andrúmsloft: Við leggjum áherslu á vandað handverk, gott spjall og þægilega samveru.
Allt innifalið: Allt efni á staðnum er innifalið. Að kveldi loknu færðu viðgerðarpakka með þér heim ef þarf að dytta að eða setja verndandi áferð yfir.
Veitingar: Boðið er upp á vatn og kaffi, en þátttakendum er velkomið að koma með aðrar veigar með sér.
Fá pláss – lítill hópur: Að lágmarki 6 og að hámarki 12 þátttakendur til að tryggja góða leiðsögn.
Skráning hér: https://ognicelandic.is/product/glansverkstaedi-reykjavik/
Nánari upplýsingar:
Staðsetning: Hraunbær 123, Reykjvík (skátaheimili Árbúa).
Dagsetning: 21. maí, 2026.
Tími: Kl. 19:30 – 22:30 (getur teygst aðeins úr ef fjörið er mikið).
Hvað þarf að taka með? Eitt par af skóm (að hluta til úr leðri/gervileðri). Ég mæli með að kíkja við í verslun Rauðakrossins, Hertex eða loppuverlanir ef þig vantar skó. Ef þú hvorki átt né finnur réttu skóna er líka hægt að koma með einfalt veski.
Mættu með skó sem hættir eru að njóta sín og farðu heim eftir gleðilega kvöldstund með glansandi gersemar
Advertisement
Where is it happening?
Hraunbæ 123, Hraunbær 123, 110 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.














![[Uppselt] HINE - n\u00e1mskei\u00f0 fyrir heilbrig\u00f0isstarfsf\u00f3lk \u00ed \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 ungb\u00f6rn](https://cdn-ip.allevents.in/s/rs:fill:500:250/g:sm/sh:100/aHR0cHM6Ly9jZG4tYXouYWxsZXZlbnRzLmluL2V2ZW50czIvYmFubmVycy80MzUyODE3MTU5ODRhYTk1OGU2ZjU2YmIxYmEyZmJlYzVkYmFlY2ZlMTgxNmE4NGQ0NDVlYTZhYmUyZTE0OTVjLXJpbWctdzEyMDAtaDgwMC1kY2Q4ZDhkOC1nbWlyP3Y9MTc3NjI4MDQ4Mw.avif)



