Björn Jörundur | Af fingrum fram | AUKATÓNLEIKAR
Schedule
Fri, 17 Oct, 2025 at 08:30 pm
UTC+00:00Location
Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Iceland | Kopavogur, GU
Advertisement
Hin lífsseiga spjalltónleikaröð Jóns Ólafssonar, Af fingrum fram, heldur ótrauð áfram inn í sextánda starfsvetur sinn í Salnum.** Vegna mikillar eftirspurnar hefur nú verið bætt við aukatónleikum með Birni Jörundi í tónleikaröðinni Af fingrum fram, þann 17. október.
Stjarna Björns Jörundar hefur oft skinið skært en kannski aldrei sem undanfarin misseri en hann hefur bæði farið með himinskautum á hvíta tjaldinu og með hljómsveit sinni, Nýdönsk, sem hann stofnaði á níunda áratug síðustu aldar ásamt vinum sínum. Frammistaða hans í Ljósvíkingum vakti mikla athygli og kappinn er jafnvígur í leik og söng. Hæfileikar hans liggja þó kannski ekki síst í tónlistargerðinni en skv. Gallup kann annað hvert mannsbarn 47% laga Björns Jörundar. Þar má nefna lög eins og Frelsið, Hjálpaðu mér upp, Fram á nótt og Nostradamus sem dæmi. Þeim Jóni gestgjafa er vel til vina og því má með sanni kalla þetta góðra vina fund.
Advertisement
Where is it happening?
Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Iceland, Hamraborg 6, 200 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, IcelandEvent Location & Nearby Stays: