Glæðum sögurnar lífi
Schedule
Sat Oct 11 2025 at 01:00 pm to 03:00 pm
UTC+00:00Location
Bókasafn Kópavogs | Kopavogur, GU
Advertisement
Glæðum sögurnar lífi - teiknismiðja með Bergrúnu Írisi mynd- og rithöfundiBörn og fjölskyldur koma saman og teikna myndir upp úr sögum og ævintýrum með Bergrúnu Írisi.
Notaleg fjölskyldusmiðja þar sem börnum gefst kostur á að hitta rithöfund og teiknara og glæða sínar eigin sögur lífi í skemmtilegri teiknismiðju. Hægt er að teikna myndir upp úr uppáhaldsbókunum sínum, uppáhaldsævintýrinu, nú eða búa til sína eigin sögu og sögupersónur.
Smiðjan fer fram á jarðhæð aðalsafns á milli 13:00 og 15:00. Hægt verður að koma við þegar hverjum og einum hentar og dvelja lengi eða stutt eftir aðstæðum.
Aðgengi er gott. Aðgangur er ókeypis og öll innilega velkomin. Gert er ráð fyrir að börn séu í fylgd með forráðafólki.
Fjölskyldustundir á laugardögum eru notalegar samverustundir, gjarnan smiðjur, sem fara fram í menningarhúsunum í Kópavogi og eru styrktar af menningar- og mannlífsnefnd.
Advertisement
Where is it happening?
Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6A,Kópavogur, Kopavogur, IcelandEvent Location & Nearby Stays: