Aðalfundur Endósamtakanna 2026
Schedule
Wed, 08 Apr, 2026 at 05:30 pm
UTC+00:00Location
Endósamtökin | Reykjavík, RE
Advertisement
Aðalfundur Endósamtakanna verður haldinn miðvikudaginn 8. apríl kl. 17:30 í húsnæði samtakanna í Sigtúni 42, 105 Reykjavík.Hlekkur á streymi frá fundinum verður sent á félaga samtakanna í tölvupósti og hægt verður að taka þátt í fundinum og kjósa rafrænt.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Val á fundarstjóra, fundarritara og atkvæðateljara.
Skýrsla stjórnar.
Samþykkt reikninga samtakanna.
Lagabreytingar og tillögur.
Stjórnarkjör.
Önnur mál.
Stjórnarkjör
Kosið er til þriggja embætta í aðalstjórn; embætti formanns, ritara og meðstjórnanda.
Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir, meðstjórnandi, og Valgerður Þ. Snæbjörnsdóttir, ritari, gefa áfram kost á sér.
Meðlimir samtakanna geta tilkynnt um framboð með tölvupósti á [email protected]. Kynning á öllum framboðum verður send meðlimum nokkrum dögum fyrir aðalfund.
Sjá núverandi stjórn hér: https://endo.is/endosamtokin/stjornin/
Samkvæmt lögum félagsins verða framboð að berast í tölvupósti í síðasta lagi viku fyrir aðalfund, þ.e. fyrir miðnætti 1. apríl nk.
Sjá nánar í lögum félagsins: https://endo.is/endosamtokin/log-samtakanna/
Meðlimir geta einnig boðið sig fram í varastjórn, en þau framboð geta borist í tölvupósti eða á fundinum sjálfum.
Boðið verður upp á léttar veitingar - vonumst til að sjá sem flest!
Kær kveðja,
Stjórn Endósamtakanna
Advertisement
Where is it happening?
Endósamtökin, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.

















