Íslenski draumurinn - Föstudagspartísýning + 25 ára afmæli
Schedule
Fri, 12 Sep, 2025 at 09:00 pm
UTC+00:00Location
Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE
Advertisement
ÞÚ MÁTT EKKI láta þig vanta á geggjaða Föstudagspartísýningu á hinni óborganlegu grínmynd ÍSLENSKI DRAUMURINN – 12. september kl.21:00. Sýningin er í tilefni af 25 ára afmæli myndarinnar í samstarfi við hlaðvarpsþáttinn Paradísarheimt! Eins og vanalega verður sjoppan stútfull af sætindum og barinn fljótandi af partíveigum sem að sjálfsögðu má taka með inní salinn!Íslenski draumurinn fjallar um draumóramanninn Tóta, en hann hefur hugsað sér að gerast ríkur á því að flytja inn búlgarskar sígarettur til landsins. Þess á milli lendir hann í rifrildi við fyrrverandi konu sína, sem er eitthvað fúl út í Tóta vegna nýju kærustunnar, sem er 18 ára. Einnig ver Tóti stórum hluta af tíma sínum í það annaðhvort að horfa á fótbolta í sjónvarpinu eða að spila Football Manager í tölvunni sinni.
Advertisement
Where is it happening?
Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland, Hverfisgata 54, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays: