Vorráðstefna 2026: Sköpum tækifæri - þátttaka og framtíð fatlaðra barna
Schedule
Thu, 07 May, 2026 at 09:00 am
UTC+00:00Location
Hilton Reykjavík Nordica og í streymi | Reykjavík, RE
Advertisement
Hin árlega vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi dagana 7. og 8. maí 2026. Í ár verður ráðstefnan haldin í samvinnu við Gló-Æfingastöð Yfirskrift ráðstefnunnar er: Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna
Á ráðstefnunni verður fjallað um þátttöku fatlaðra barna í daglegu lífi og samfélagi og hvernig skapa megi raunveruleg tækifæri til þátttöku, nú og til framtíðar. Sjónum verður beint að mikilvægi umhverfis, viðhorfa og samstarfs í mótun farsællar þjónustu og stuðnings.
Markmiðið er að draga fram fjölbreytt sjónarhorn úr fræða- og reynsluheimi, efla samtal fagfólks, fjölskyldna og annarra hagaðila og horfa til framtíðar með það að leiðarljósi að styrkja stöðu, lífsgæði og þátttöku fatlaðra barna.
Nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara verða kynntar síðar.
Takið dagana frá!
Advertisement
Where is it happening?
Hilton Reykjavík Nordica og í streymi, Nordica, Suðurlandsbraut, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.






