Vilhjálmur Vilhjálmsson 80 ára

Schedule

Sat Apr 12 2025 at 04:30 pm to 06:45 pm

UTC+00:00

Location

Harpa Concert Hall | Reykjavík, RE

Advertisement
Síðustu aukatónleikarnir 12. apríl kl. 16:30.
Miðasala hefst 5. febrúar kl. 11:15 á harpa.is
Söngvarinn ástsæli Vilhjálmur Vilhjálmsson fæddist 11. apríl árið 1945 og hefði því orðið áttræður í apríl nk. Fólk man ljúfa tenórrödd þessa vinsæla dægurlagasöngvara og það sem meira er, ungt fólk sem fætt er löngu eftir fráfall Vilhjálms dáir lögin sem hann gerði að sínum með persónulegum og áreynslulausum söngstíl. Mörg lög lifa enn í minningunni hátt í fimmtíu árum eftir að þau komu út, svo sem Lítill drengur, Bíddu pabbi, Þú átt mig ein og Söknuður svo að örfá séu nefnd. Í tilefni af fæðingarafmæli söngvarans verða einstakir afmælistónleikar haldnir í Eldborg 11. og 12. apríl 2025.
Friðrik Ómar syngur lög Vilhjálms ásamt stórhljómsveit undir stjórn Karls. O. Olgeirssonar. Björt og fögur söngrödd Friðriks minnir óneitanlega á áferð raddar Vilhjálms. Sérstök forsala verður á miðlum Friðriks Ómars þann 10. desember kl. 10:00. Instagram: fromarinn Facebook: fridrikomar Almenn miðasala hefst 12. desember kl. 10:00 á harpa.is
Um Vilhjálm Vilhjálmsson Vilhjálmur hóf söngferil sinn með hljómsveitinni Busabandinu árið 1961 þegar hann var við nám við Menntaskólann á Akureyri. Fram að þeim tíma hafði hann ekki mikla trú á tónlistarhæfileikum sínum og stefndi ekki á frama á því sviði. Vilhjálmur kom þó úr mikilli tónlistarfjölskyldu. Hann var yngstur fimm systkina og ólst upp á Merkinesi í Höfnum á Suðurnesjum. Faðir hans, Vilhjálmur Hinrik Ívarsson, var þekktur harmonikuleikari og söngmaður en eldri systir hans var, eins og alþjóð veit, söngkonan Elly Vilhjálms. Vilhjálmur fylgdi fyrrverandi meðlimi úr Busabandinu, Þorvaldi Halldórssyni, og fór að syngja með Hljómsveit Ingimars Eydal árið 1965, um svipað leyti og hann lauk menntaskólanámi. Hann söng inn á tvær plötur með hljómsveitinni og vann strax hylli þjóðarinnar með lögum eins og Litla sæta ljúfan góða og Vor í Vaglaskógi. Vilhjálmur hætti í hljómsveit Ingimars Eydal og fluttist til Reykjavíkur til að hefja tannlæknanám. Hann sagði þó ekki skilið við tónlistina og vann fyrir sér með því að syngja með Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar sem lék á veitingahúsinu Röðli öll kvöld vikunnar. Vilhjálmur hætti tannlæknanáminu eftir tvö ár og helgaði sig alfarið tónlistinni. Vilhjálmur söng inn á fjórar plötur með systur sinni Elly, sú fyrsta, Systkinin Vilhjálmur og Elly syngja saman, kom út árið 1969. Allar plöturnar nutu mikilla vinsælda og varla er til sá Íslendingur sem ekki getur raulað með jólaplötu þeirra systkina. Eftir að hafa lokið flugnámi árið 1970 flutti Vilhjálmur til Lúxemborgar en kom þó reglulega heim í frí og söng inn á plötur. Hann gaf út sólóplötu árið 1972 sem sló rækilega í gegn. Platan innihélt vinsæl lög eins og Bíddu pabbi og Ó mín kæra vina. Árið 1976 kom svo út platan Með sínu nefi þar sem Vilhjálmur söng lög sem hann lét semja við ljóð Kristjáns frá Djúpalæk. Ári síðar kom svo út platan Hana-nú sem geymdi meðal annarra lögin Sökunuður og Þú att mig ein. Söngferill Vilhjálms spannaði þó ekki langan tíma, en hann lést sem kunnugt er langt fyrir aldur fram í bílslysi í Lúxemborg árið 1978. Vilhjálmur lét eftir sig þrjú börn.
Advertisement

Where is it happening?

Harpa Concert Hall, Epal - Harpa og Laugavegur, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

RIGG - vi\u00f0bur\u00f0ir

Host or Publisher RIGG - viðburðir

It's more fun with friends. Share with friends

Discover More Events in Reykjavík

Vilhj\u00e1lmur Vilhj\u00e1lmsson 80 \u00e1ra-\u00f6rf\u00e1 s\u00e6ti laus!
Fri, 11 Apr, 2025 at 08:00 pm Vilhjálmur Vilhjálmsson 80 ára-örfá sæti laus!

Harpa Concert Hall

Hlj\u00f3msveitin Goldies & Johnny King
Fri, 11 Apr, 2025 at 08:00 pm Hljómsveitin Goldies & Johnny King

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland

MUSIC ENTERTAINMENT
Event Horizon - F\u00f6studagspart\u00eds\u00fdning!
Fri, 11 Apr, 2025 at 09:00 pm Event Horizon - Föstudagspartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

PARTIES ENTERTAINMENT
Bestar \u00e1 breyt\u00f3:hreyfing, n\u00e6ring, b\u00e6tiefni
Sat, 12 Apr, 2025 at 01:00 pm Bestar á breytó:hreyfing, næring, bætiefni

Samkennd Heilsusetur

Anime Defilement Vol.1 +Support at Gaukurinn
Sat, 12 Apr, 2025 at 07:00 pm Anime Defilement Vol.1 +Support at Gaukurinn

Gaukurinn

ANIME SPORTS
Vilhj\u00e1lmur Vilhj\u00e1lmsson 80 \u00e1ra
Sat, 12 Apr, 2025 at 08:00 pm Vilhjálmur Vilhjálmsson 80 ára

Harpa Concert Hall

Fj\u00f6lskyldudagskr\u00e1 H\u00f6rpu: S\u00f6gustund me\u00f0 Max\u00edm\u00fas \/\/ Story time with Maximus (in Icelandic)
Sun, 13 Apr, 2025 at 01:00 pm Fjölskyldudagskrá Hörpu: Sögustund með Maxímús // Story time with Maximus (in Icelandic)

Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Iceland

MUSIC LIVE-MUSIC
B\u00ed\u00f3teki\u00f0: \u00d3svaldur Knudsen og Sveitin milli sanda
Sun, 13 Apr, 2025 at 03:00 pm Bíótekið: Ósvaldur Knudsen og Sveitin milli sanda

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

PERGOLESI \u2013 STABAT MATER
Sun, 13 Apr, 2025 at 05:00 pm PERGOLESI – STABAT MATER

Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík, Iceland

PERFORMANCES ENTERTAINMENT
B\u00ed\u00f3teki\u00f0: Fiskur undir steini + umr\u00e6\u00f0u\u00fe\u00e1ttur RUV
Sun, 13 Apr, 2025 at 05:00 pm Bíótekið: Fiskur undir steini + umræðuþáttur RUV

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

What's Happening Next in Reykjavík?

Discover Reykjavík Events