Synt út í Viðey

Schedule

Fri Aug 21 2026 at 05:00 pm to 07:00 pm

UTC+00:00
Location

Kría fargufa | Reykjav, RE

Advertisement
SJÓR býður þér að synda út í Viðey föstudaginn 21. ágúst.
ATH. breytt staðsetning!
Mæting við sjósundsaðstöðuna á Gufunesi kl. 16:00 - sundið hefst kl.17:00.
Skráning fer fram í gegnum Markaðstorg Abler:
https://www.abler.io/shop/sjor?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6Mjg3NTQ=
*ath. ekki er nóg að skrá “Mæti” við viðburðinn.
Í nýja sundinu hjá okkur er einungis synt heilt sund þ.e. 1.500 metra sund.
Synt er frà sandfjörunni í Gufunesi að Viðey, klukka bakkann þar, og svo synt til baka að sandfjörunni i Gufunesi.
Boðið verður upp á sauna til að hita sig upp eftir sundið.
Þeir sem ætla að fara beint heim eða í sundlaug eftir sundið er bent á að hafa aðstandanda með sér.
Áður en sundið hefst þurfa allir að heilsa upp á okkur og fá glæsilega sundhettu og rásnúmer.
Við gerum þær kröfur að sundmenn hafi synt Fossvogssundið eða sambærilegt sund og sýni fram á það með kvittun í sjóbók.
Góð bátagæsla verður á staðnum að aðstoða sundfólk.
Reikna má með að sjórinn verði á bilinu 10 til 13 gráður.
Ath. ef Sjóbók er ekki til staðar þarf að útlista reynslu með skýrari hætti og ræða við okkur um aðra möguleika á að staðfesta reynslu.
Sundið kostar kr. 2.500 fyrir virka félagsmenn og kr. 10.000 fyrir aðra.
* Athugið að fólk er á eigin ábyrgð í sundum á vegum SJÓR. Þó verður sundmaður að hlýða kalli öryggisvarðar og koma í bátinn ef verðinum sýnist komið í óefni.
* Mikilvægt er að vera vel hvíldur og nærður þegar lagt er í stór sund.
* Litríkar sundhettur eru skylda, erfitt getur reynst fyrir þá sem sinna öryggisgæslu að sjá sundmenn með hvítar, bláar, svartar eða gráar sundhettur.
* Hér getur þú reiknað sundhraðann þinn (pace):
https://www.calculator.net/pace-calculator.html
SKRÁNINGU LÝKUR Á MIÐNÆTTI MIÐVIKUDAGINN 19. ÁGÚST
Ef þið hafið einhverjar spurningar þá er best að skella þeim hér inn í viðburðinn eða hafa samband í gegnum vefsíðuna okkar:
https://sjor.is/hafa-samband/
Advertisement

Where is it happening?

Kría fargufa, Reykjav, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
SJ\u00d3R Sund- og sj\u00f3ba\u00f0sf\u00e9lag Reykjav\u00edkur
Host or PublisherSJÓR Sund- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur

Ask AI if this event suits you