Sumargleði FKA-DK 2026: Búbblur & Bylgjur 🥂⛵
Schedule
Thu, 25 Jun, 2026 at 05:00 pm
UTC+02:00Location
Við hittumst fyrir framan The Standard, Havnegade 44, 1058 København K. | Copenhagen , SK
Advertisement
Kæru konur!Sumargleðin okkar er loksins á næsta leiti. Þetta er án efa einn af vinsælastu viðburðum ársins hjá félaginu og því borgar sig að hafa hraðar hendur.
Dagskráin
Við hittumst fyrir framan The Standard (Havnegade 44, Kbh K) kl. 17 og byrjum kvöldið á freyðandi fjöri og siglingu um fallegu síkin í Kaupmannahöfn. Við siglum af stað kl. 17.30 með búbblur í glasi og góða skapið í farteskinu ætlum við að njóta samverunnar og skemmta okkur undir dásamlegri veislustjórn Ástu Stefánsdóttur.
Að siglingu lokinni höldum við leiknum áfram og færum okkur yfir í Kongens Have. Þar ætlum við að njóta þess að styrkja tengslin, hlæja og eiga góða stund saman.
Gott að vita:
🍔 Matur: Við gæðum okkur á borgurum frá Burger Joint. Pöntunarform fyrir matinn verður sent út síðar, svo fylgist vel með!
🥂 Drykkir: Eru innifaldir í verðinu (óáfengir & áfengir)
🧺 Muna eftir: Mætið með ykkar eigið teppi, glas og góða skapið.
🎟️ Tryggðu þér sæti strax: https://billetto.dk/e/sumargledi-fka-dk-2026-bubblur-bylgjur-billetter-1920317
Þessi viðburður er hápunktur sumarsins hjá FKA-DK og við hlökkum mikið til að sjá ykkur allar í eintómri gleði og glensi!
Eins og alltaf er viðburðurinn opinn öllum konum, hvort sem þær eru skráðar í félagið eða ekki, svo endilega takið vinkonu með.✨
Advertisement
Where is it happening?
Við hittumst fyrir framan The Standard, Havnegade 44, 1058 København K., Havnegade 44, 1058 København K, Danmark, Copenhagen , DenmarkEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.



















