Stolin athygli leitar eiganda síns!
Schedule
Wed, 11 Mar, 2026 at 08:00 pm
UTC+00:00Location
Hlégarður | Reykjavík, RE
Advertisement
Fræðslu- og umræðufundur fyrir foreldra í grunnskólum Mosfellsbæjar um skjátæki og samfélagsmiðla í Hlégarði miðvikudaginn 11. mars kl. 20:00.Fundurinn er hluti af vinnu á vegum fræðslu- og frístundasviðs sem er ætlað að leggja grunn að sameiginlegum reglum í grunn-skólum bæjarins varðandi notkun snjalltækja.
Starfsfólk Netvís verður með erindi auk þess sem tækifæri gefast til umræðna og skoðanaskipta.
Skúli Bragi Geirdal og Haukur Brynjarsson frá Netvís taka fyrir atriði í starfrænu umhverfi sem ber að varast auk þess að veita góð ráð varðandi notkun barna á skjátækjum og samfélagsmiðlum.
- Hvernig eru tæki, leikir og öpp hönnuð til að grípa og stela athygli okkar og hvað getum við gert til að taka stjórnina í okkar hendur?
- Skjátími barna, aldurstakmörk á samfélagsmiðlum, samskipti á netinu, áreitni og deiling mynda.
- Farið verður yfir heilræði til foreldra, verkfærakistu með gagnlegu stuðningsefni og gerð fjölskyldusáttmála.
Erindið byggir á niðurstöðum rannsókna Fjölmiðlanefndar í samstarfi við Mennta-vísindastofnun Háskóla Íslands og Maskínu.
Tökum höndum saman og stöndum vörð um öryggi barna okkar á netinu.
Advertisement
Where is it happening?
Hlégarður, Háholt 2, 270 Mosfellsbær, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
















