Skapandi fjölskyldu tónlistarmiðja

Schedule

Sun Aug 30 2026 at 12:30 pm to 02:30 pm

UTC+00:00
Location

Nýi tónlistarskólinn | Reykjavík, RE

Advertisement
Skapandi fjölskyldusmiðja fer fram í Nýja tónlistarskólanum, Grensásvegi 3, sunnudaginn 30. ágúst milli 13.30-15.30.
Boðið er upp á smiðjuna fjölskyldum algerlega að kostnaðarlausu!

Í smiðjunni munu fjölskyldur taka þátt í því að semja nýja tónlist sem verður flutt við lok samverustundarinnar. Smiðjan er liður í stjórnendanámskeiði fyrir tónlistarkennara og stjórnendur víðsvegar að af landinu öllu. Yfirumsjón með smiðjunni verður í höndum Sigrúnar Sævarsdóttur-Griffiths en þátttakendur í stjórnendanámskeiðinu munu fá að spreyta sig á að stýra afmörkuðum köflum smiðjunnar.
Engin krafa er gerð um fyrri reynslu af tónlist eða hljóðfæraleik, en ef fjölskyldumeðlimir spila á hljóðfæri eru þau eindregin hvött til þess að koma með hljóðfærin með sér!
Smiðjan er ætluð foreldrum og börnum 5 ára og eldri. Smiðjan mun vara í tvær klukkustundir með stuttu hléi, þar sem boðið verður upp á litla hressingu.
Takmarkaður þátttakendafjöldi verður á smiðjunni og því er vert að sækja um sem fyrst!
Skráning á: https://forms.office.com/r/6KBDQQfr8n
Vinsamlegast athugið að Nýi tónlistarskólinn er á þriðju hæð og í húsinu er engin lyfta.
Ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband við Sigrúnu Sævarsdóttur-Griffiths á [email protected]
Advertisement

Where is it happening?

Nýi tónlistarskólinn, n%C3%BDi t%C3%B3nlistarsk%C3%B3linn, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.

Ask AI if this event suits you