Power Move Studio: Byrjendanámskeið í Zumba

Schedule

Sat, 12 Sep, 2026 at 10:00 am

UTC+00:00
Location

Menntaskólinn við Hamrahlíð, Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE

Advertisement
Nýtt í sölu hjá Power Move Studio: Byrjendanámskeið í Zumba
Í september býður Power Move Studio upp á skemmtilegt og hvetjandi byrjendanámskeið í Zumba. Námskeiðið hentar öllum þeim sem eru í leit að skemmtilegri hreyfingu, vilja dansa sín fyrstu dansspor í Zumba og öðlast meiri þekkingu eða sjálfstraust í öruggu, léttu og hvetjandi umhverfi áður en mætt er í hefðbundna Zumba tíma.
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu grunnspor, kynnumst algengum dansstílum í Zumba og deilum ýmsum góðum ráðum til þess að hafa í farteskinu þegar þú mætir í Zumba tíma. Engin fyrri dansreynsla er nauðsynleg. Mestu skiptir að mæta, hafa gaman og leyfa gleðinni og tónlistinni að ráða för!
Námskeiðið fer fram helgarnar 12.-13. september og 19.-20. september og verður með eftirfarandi hætti:
Laugardagur 12. september kl. 10:00-10:40:
Kynnumst m.a. dansstílunum merengue og salsa og förum í helstu grunnspor.
Sunnudagur 13. september kl. 11:00-12:00:
Byrjendavænn Zumba tími. Látum reyna á grunnsporin og prófum fleiri spor.
Laugardagur 19. september kl. 10:00-10:40:
Kynnumst m.a. dansstílunum cumbia og reggaeton. Förum í helstu grunnspor og byggjum áfram á grunninum.
Sunnudagur 20. september kl. 11:00-12:00:
Byrjendavænn Zumba tími. Rifjum upp og förum betur í sporin og leyfum þessu öllu að smella saman.
Að auki er innifalinn tveggja vikna aðgangur að Zumba tímum á tímatöflu Power Move Studio en á meðan á námskeiðinu stendur fá þátttakendur aðgang að öllum Zumba tímum dagana 12.-26. september 2026.
Verð: 19.900 kr.
Staðsetning: Íþróttasalur Menntaskólans við Hamrahlíð (Hamrahlíð 10)
Skráning: [email protected]
Við lofum góðri tónlist, einföldum og skemmtilegum dönsum, smá heilaleikfimi og mikilli gleði.
Tryggðu þér pláss og vertu með í geggjuðu partýi!
*Athugið að námskeiðið verður aðeins haldið ef lágmarksþátttaka næst.
Advertisement

Where is it happening?

Menntaskólinn við Hamrahlíð, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Power Move Studio
Host or PublisherPower Move Studio

Ask AI if this event suits you