Silva & Steini - Jól í Iðnó
Schedule
Fri, 12 Dec, 2025 at 08:00 pm
UTC+00:00Location
IÐNÓ | Reykjavík, RE
Advertisement
https://tix.is/event/20465/silva-steini-jol-i-idnoÞað verða ekki mikil læti í Iðnó kvöldið 12. desember. Söngvararnir Silva Þórðardóttir og Steingrímur Teague leggja mikið uppúr sterku andrúmslofti og fallegri stemmningu, sem heimfærist einkar vel á jólatónlist, eins og fastagestir á jólatónleika þeirra eru farnir að þekkja, og kom enn sterkar í ljós á plötunni Christmas With Silva & Steini, sem kom út í fyrra við mikinn fögnuð jólaunnenda.
Sem fyrr verður seilst djúpt í jólalagaskúffuna eftir óvæntum perlum í bland við einhver þekkt lög, og takmarkið að allir gestir fari heim með fullhlaðin hjartabatterí.
Flytjendur í ár verða eftirtaldir:
Silva Þórðardóttir: söngur
Steingrímur Teague: söngur, píanó
Andri Ólafsson: kontrabassi
Magnús Trygvason Eliassen: trommur
Eiríkur Orri Ólafsson: málmblástur
Jóel Pálsson: tréblástur
Mynd: Anna Maggý
Advertisement
Where is it happening?
IÐNÓ, Vonarstræti 3,Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.




