QUEENS OF THE STONE AGE
Það eru ekki margir viðburðir sem fá rokkaðdáendur til að staldra við. En þegar Queens of the Stone Age mæta til landsins eftir 25 ára bið er von á alvöru tónleikum.
Það mætti segja að hér sé um að ræða langþráða endurfundi íslenskra rokkara við eina áhrifamestu rokksveit síðustu áratuga. Bandið hefur lengi viljað setja Ísland inn sem áfangastað á tónleikaferðum en ekki tekist. Þeir ákváðu að bíða ekki lengur og kýla á sérferð til Íslands. Þannig að hér er sannarlega um einstaka tónleika að ræða, settir sérstaklega upp fyrir Ísland og ekki partur af stærri túr.
QOTSA njóta sín best á sviðinu, eru þekktir fyrir magnaða tónleika og hafa aldrei verið betri. Það er því óhætt að lofa ógleymanlegu kvöldi.
Upphitun verður í höndum reykvísku sveitarinnar Virgin Orchestra sem hefur verið á mikilli siglingu síðustu ár, bæði hér heima og erlendis.
Ekki missa af sérstökum Íslands tónleikum, með Queens of the Stone Age, í Höllinni!
Where is it happening?
Event Location & Nearby Stays:


















