Orgel Fríkirkjunnar í Reykjavík 100 ára | Lára Bryndís Eggertsdóttir

Schedule

Sun Oct 25 2026 at 04:00 pm to 05:00 pm

UTC+00:00
Location

Fríkirkjuvegi 5, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjav, RE

Advertisement
(English below)
Orgel Fríkirkjunnar í Reykjavík 100 ára | Lára Bryndís Eggertsdóttir
Fríkirkjan í Reykjavík fagnar þessum tímamótum með tónleikum og aðrir tónleikar tónleikaraðarinnar fara fram sunnudaginn 25. október kl. 16:00 og er aðgangur ókeypis.
Tónleikaröð í tilefni af afmæli orgels Fríkirkjunnar í Reykjavík:
25. október kl. 16:00 Lára Bryndís Eggertsdóttir
22. nóvember kl. 16:00 Björn Steinar Sólbergsson
29. nóvember kl. 16:00 Áki Ásgeirsson
20. desember kl. 16:00 Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson
Í maíbyrjun árið 1926 komu til landsins með Lagarfossi 42 kassar frá Þýskalandi. Farmurinn vó 11 tonn og innihélt nýtt orgel fyrir Fríkirkjuna í Reykjavík. Með í för var orgelsmiður frá Sauer-verksmiðjunum í Frankfurt við ána Oder. Hann setti upp orgelið ásamt Ísólfi Pálssyni, hljóðfærasmiði og uppfinningamanni, föður Páls Ísólfssonar tónskálds og organista, og Pálmari syni hans. Uppsett kostaði hljóðfærið 41.500 krónur, andvirði tveggja einbýlishúsa, og var langstærsta hljóðfæri landsins. Það var við hæfi enda Fríkirkjan stærsta samkomuhús á landinu á þeim tíma.
Páll Ísólfsson hóf störf við Fríkirkjuna sama haust og var orgelið keypt „svo viðunandi orgel til afnota fyrir hr. Pál væri í kirkjunni“, eins og segir í bréfi nokkurra aðila í Reykjavík sem tóku sig saman ásamt stjórn safnaðarins og öfluðu fjár til orgelkaupanna. Árið 1939 gerðist Páll organisti við Dómkirkjunna. Við stöðunni tók þá Sigurður Ísólfsson, bróðir Páls og nemandi. Sigurður var lærður úrsmiður og var einstaklega natinn við að halda hljóðfærinu við.
Fríkirkjuorgelið er elsta pípuorgel landsins sem enn er í notkun og ber með sér heillandi sögu íslensks tónlistarlífs, orgelsmíði og kirkjusögu allt frá árinu 1926.
///
The Organ of Fríkirkjan in Reykjavík 100 years | Lára Bryndís Eggertsdóttir
Fríkirkjan in Reykjavík is celebrating the centenary of its organ with a series of concerts. The second concert in the series will take place on Sunday, 25 October at 16:00. Admission is free.
Concert series celebrating the centenary of the organ at Fríkirkjan in Reykjavík:
25 October at 16:00 – Lára Bryndís Eggertsdóttir
22 November at 16:00 – Björn Steinar Sólbergsson
29 November at 16:00 – Áki Ásgeirsson
20 December at 16:00 – Sigurður Flosason and Gunnar Gunnarsson
In early May 1926, 42 crates arrived in Iceland aboard the ship Lagarfoss from Germany. The cargo weighed 11 tonnes and contained a new organ for Fríkirkjan in Reykjavík. An organ builder from the Sauer organ factory in Frankfurt an der Oder accompanied the shipment. He installed the instrument together with Ísólfur Pálsson, an instrument maker and inventor, father of the composer and organist Páll Ísólfsson, and Pálmar, Ísólfur's son.
The fully installed organ cost 41,500 Icelandic krónur, equivalent to the price of two detached houses at the time, and was by far the largest musical instrument in Iceland. This was fitting, as Fríkirkjan was then the largest public assembly building in the country.
Páll Ísólfsson began working at Fríkirkjan that same autumn. The organ had been purchased to ensure that “a suitable organ would be available for Mr Páll to use in the church,” as stated in a letter from several Reykjavík residents who joined forces with the congregation's board to raise funds for the purchase.
In 1939, Páll became organist at Reykjavík Cathedral. His brother and former student, Sigurður Ísólfsson, succeeded him at Fríkirkjan. Sigurður was a trained watchmaker and took exceptional care in maintaining the instrument.
The organ at Fríkirkjan is the oldest pipe organ in Iceland still in regular use. It carries with it a fascinating history of Icelandic musical life, organ building and church history, dating back to 1926.
Advertisement

Where is it happening?

Fríkirkjuvegi 5, 101 Reykjavík, Iceland, Fríkirkjuvegur 5, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Fr\u00edkirkjan \u00ed Reykjav\u00edk
Host or PublisherFríkirkjan í Reykjavík

Ask AI if this event suits you