ONE LIFE STAND - ný rödd kvenna - Hádegistónleikar
Schedule
Thu Apr 30 2026 at 12:00 pm to 12:30 pm
UTC+00:00Location
Fríkirkjan við Tjörnina | Reykjavík, RE
Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni
fimmtudaginn 26. mars 2026
- ONE LIFE STAND - ný rödd kvenna -
Á efnisskránni er ljóðaflokkurinn One Life Stand eftir Cheryl Frances-Hoad við ljóð
Sophie Hannah. Ljóðaflokkurinn er einskonar nútíma útgáfa af Frauenliebe und -leben
eftir R.Schumann. Verkið One Life Stand var pantað af Cambridge Summer Music
Festival 2011 og frumflutt af Jennifer Johnston og Joseph Middleton sama ár.
Hugmyndin kviknaði þegar Jennifer Johnston kvartaði við Cheryl Frances-Hoadyfir
úreltum texta Chamisso í Frauen-Liebe und Leben og bað tónskáldið um nútímalegri
ljóðaflokk um líf kvenna. Eftir nokkra leit valdi Cheryl átta ljóð úr fjórum ljóðabókum
Sophie Hannahtil að mynda þennan ljóðaflokk sem er nútímaleg innsýn inn í ýmiskonar
senur í lífi kvenna. Tónskáldið sótti mikinn innblástur til tónlistar Schumanns – bæði
hvað varðar hljómaharmóníu, mótífa og áferðar.
Flytjendur eru Hildigunnur Einarsdóttir, mezzosópran og Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanóleikari.
Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.
Where is it happening?
Fríkirkjan við Tjörnina, Fríkirkjuvegur 5, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:



















