Liszt og landlit

Schedule

Thu, 30 Apr, 2026 at 07:30 pm

UTC+00:00

Location

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2 | Reykjavík, RE

Hollenski píanóleikarinn Nikola Meeuwsen flytur píanókonsert nr. 2 eftir Franz Liszt með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Nikola hlaut hæfileikaverðlaun Concertgebouw árið 2019 og hin virtu Grachtenfestival verðlaun árið 2022, sem veitt eru árlega ungu hæfileikaríku tónlistarfólki. Ferill Nikola Meeuwsen fór síðan á flug á síðasta ári er hann bar sigur úr býtum í hinni virtu píanókeppni sem kennd er við Elísabetu drottningu af Belgíu. Píanókonsert nr. 2 eftir Franz Liszt skipar nokkuð sérstakan sess í höfundarverki tónskáldsins, hann er í einum löngum þætti sem skiptist í sex smærri hluta og ber píanósnillingnum Franz Liszt glæsilegt vitni.
Það telst til stórtíðinda þegar ný íslensk sinfónía er frumflutt. Landlit er fyrsta sinfónía Páls Ragnars Pálssonar, en Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur áður flutt nokkur verka hans, síðast var það fagott-konsertinn PLAY. Landlit sækir innblástur í samnefnt mynd listar verk Valgerðar Briem, föðurömmu Páls, en það er stór mynd röð sem endur speglar áferð gróður- og bergmyndana landsins á óræðan hátt.
Ballettinn um Mandarínann makalausa var frumfluttur í Þýskalandi árið 1926 og olli miklu hneyksli vegna ósiðsamlegs inntaks og var bannaður í kjölfarið. Viðtökurnar voru jákvæðari í Prag ári síðar en sagan um ræningjana þrjá, sem nýta sér unga stúlku til að tæla til sín fórnarlömb, var stöðugt til vandræða og tilefni ritskoðunar. Það var ekki fyrr en Bartók skrifaði konsertsvítuna sem hér heyrist að tónlistin fór að hljóma víðar og þessi fjölbreytta, kraftmikla tónlist varð eftirlæti tónleikagestum víða veröld.
*Píanóleikarinn Denis Kozhukhin sem upphaflega átti að koma fram sem einleikari í sinfóníu nr. 4 eftir Karol Szymanowski þurfti því miður að afboða komu sína. Í hans stað stígur hollenski píanóleikarinn Nikola Meeuwsen á svið og flytur Píanókonsert nr. 2 eftir Franz Liszt. Tónleikarnir bera nú heitið Liszt og Landlit.
Efnisskrá
Páll Ragnar Pálsson Sinfónía. Landlit – frumflutningur
Franz Liszt Píanókonser nr. 2
Béla Bartók Mandaríninn makalausi
Hljómsveitarstjóri
Eva Ollikainen
Einleikari
Nikola Meeuwsen
//
It is always considered big news when a new Icelandic symphony is premiered. Landlit is Páll Ragnar Pálsson's first symphony, but the Iceland Symphony Orchestra has previously performed several of his works, most recently the bassoon concerto PLAY. Landlit draws inspiration from the eponymous painting by Valgerður Briem, Páll's paternal grandmother, which is a large series of paintings that reflect the texture of Iceland's vegetation and rock formations in an ambiguous way.
Dutch pianist Nikola Meeuwsen performs Piano Concerto No. 2 by Franz Liszt with the Iceland Symphony Orchestra. Nikola received the Concertgebouw Young Talent Award in 2019 and the prestigious Grachtenfestival Award in 2022, which is awarded annually to young, outstanding musicians. Nikola Meeuwsen's career took off last year when he emerged victorious in the renowned piano competition named after Queen Elisabeth of Belgium. Piano Concerto No. 2 by Franz Liszt holds a rather special place in the composer's body of work: it is written as a single, continuous movement divided into six smaller sections and stands as a brilliant testament to the virtuosity of the piano master Franz Liszt.
The ballet The Miraculous Mandarin was premiered in Germany in 1926 caused a great scandal due to its immoral content and was subsequently banned. The reception was more positive in Prague a year later, but the story of the three robbers who use a young girl to lure their victims was a constant source of trouble and censorship. It was not until Bartók wrote the concert suite heard here that the music began to resonate more widely, and this diverse, dynamic music became a favourite of concertgoers around the world.
*Denis Kozhukhin, who was originally scheduled to appear as soloist in Symphony No. 4 by Karol Szymanowski, has unfortunately had to cancel. In his place, pianist Nikola Meeuwsen will perform Piano Concerto No. 2 by Franz Liszt.
Program
Páll Ragnar Pálsson Symphony – Face of Earth, World Premiere
Franz Liszt Piano Concerto No. 2
Béla Bartók The Miraculous Mandarin
Conductor
Eva Ollikainen
Soloist
Nikola Meeuwsen

Where is it happening?

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Icon
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Sinf\u00f3n\u00eduhlj\u00f3msveit \u00cdslands

Host or Publisher Sinfóníuhljómsveit Íslands

Ask AI if this event suits you:

Discover More Events in Reykjavík

Konukv\u00f6ld KF\u00cdA
Thu, 30 Apr at 06:30 pm Konukvöld KFÍA

Íþróttahúsið Vesturgötu

Sleeping Giant - The Beauty of Obliteration \u00fatg\u00e1fut\u00f3nleikar
Fri, 01 May at 07:00 pm Sleeping Giant - The Beauty of Obliteration útgáfutónleikar

LEMMY

CONCERTS MUSIC
Mean Girls - F\u00f6studagspart\u00eds\u00fdning!
Fri, 01 May at 09:00 pm Mean Girls - Föstudagspartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

PARTIES ENTERTAINMENT
Fj\u00f6lskyldudagskr\u00e1 H\u00f6rpu: S\u00f6gustund me\u00f0 Max\u00edm\u00fas | Storytime with Maximus Musicus
Sat, 02 May at 11:00 am Fjölskyldudagskrá Hörpu: Sögustund með Maxímús | Storytime with Maximus Musicus

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

LIVE-MUSIC TRIPS-ADVENTURES
H\u00c1DEGIST\u00d3NLEIKAR \u00ed Hallgr\u00edmskirkju \/ Matin\u00e9e
Sat, 02 May at 12:00 pm HÁDEGISTÓNLEIKAR í Hallgrímskirkju / Matinée

Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík, Iceland

CONCERTS MUSIC
Eftir framt\u00ed\u00f0ina: Samantekt \u00e1 myndskreytingum \/ After the Future: A Collage Digestion
Sat, 02 May at 02:00 pm Eftir framtíðina: Samantekt á myndskreytingum / After the Future: A Collage Digestion

Borgarbókasafnið Grófinni - The Reykjavik City Library Grófin

FESTIVALS
Aftur til fort\u00ed\u00f0ar | 80\u00b4s \/ 90\u00b4s & 2000\u00b4s
Sat, 02 May at 06:00 pm Aftur til fortíðar | 80´s / 90´s & 2000´s

Laugardalshöllin

ENTERTAINMENT PARTIES
\u00d6ll ver\u00f6ldin er leiksvi\u00f0 - leikh\u00fast\u00f3nlist Hj\u00e1lmars H. Ragnarssonar
Wed, 11 Mar at 08:00 pm Öll veröldin er leiksvið - leikhústónlist Hjálmars H. Ragnarssonar

Harpa Concert Hall

MUSIC ENTERTAINMENT
Ragga Gr\u00f6ndal \u00e1 Hotel Holti
Thu, 12 Mar at 06:00 pm Ragga Gröndal á Hotel Holti

Hotel Holt, Reykjavik

MUSIC ENTERTAINMENT
Kian Soltani leikur Lutos\u0142awski
Thu, 12 Mar at 07:30 pm Kian Soltani leikur Lutosławski

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

ENTERTAINMENT CONCERTS
Monomyth Presents No Cameo - bkpm - FR\u00ddS
Thu, 12 Mar at 08:00 pm Monomyth Presents No Cameo - bkpm - FRÝS

RVK Bruggfélag Tónabíó

ART
Fimmtudagseymd \u00e1 Lemmy
Thu, 12 Mar at 08:00 pm Fimmtudagseymd á Lemmy

LEMMY

MUSIC ENTERTAINMENT
Halld\u00f3r Eldj\u00e1rn
Thu, 12 Mar at 08:00 pm Halldór Eldjárn

Óðinsgata 2, 101 Reykjavík, Iceland

CONCERTS MUSIC
T\u00f3nleikar S\u00f6ngbr\u00e6\u00f0ra \u00e1 Akranesi
Thu, 12 Mar at 08:00 pm Tónleikar Söngbræðra á Akranesi

Tónberg

Kirtan me\u00f0 Glimmer Mysterium Blissband
Thu, 12 Mar at 08:00 pm Kirtan með Glimmer Mysterium Blissband

Yogavin

Jazz \u00ed Dj\u00fapinu \/\/ Kristbj\u00f6rn Helgason
Thu, 12 Mar at 08:30 pm Jazz í Djúpinu // Kristbjörn Helgason

Veitingahúsið Hornið

MUSIC ENTERTAINMENT
Elgar & Eldfuglinn
Fri, 13 Mar at 06:00 pm Elgar & Eldfuglinn

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

MUSIC ENTERTAINMENT
Joseph Branciforte + Jozef Dumoulin: Iterae
Fri, 13 Mar at 08:00 pm Joseph Branciforte + Jozef Dumoulin: Iterae

Óðinsgata 2, 101 Reykjavík, Iceland

MUSIC ENTERTAINMENT
MYRKVI\u00d0I - S\u00d3T - CAPUT CORVI \u00e1 Lemmy
Fri, 13 Mar at 09:00 pm MYRKVIÐI - SÓT - CAPUT CORVI á Lemmy

LEMMY

R6013: World Narcosis - final shows
Sat, 14 Mar at 06:00 pm R6013: World Narcosis - final shows

R6013, Ingólfsstræti 20, 101 Reykjavíkurborg, Ísland

MUSIC ENTERTAINMENT

What's Happening Next in Reykjavík?

Discover Reykjavík Events