Nornagusa í Sánuvagni Mæju með Tinnu
Schedule
Mon, 15 Jun, 2026 at 10:00 am
UTC+00:00Location
600 Akureyri, Iceland | Akureyri, AU
Advertisement
Tinna Thorlacius með kvennagusu á nýju tungli í Sánuvagni Mæju.Við ætlum að njóta saman í hitanum yfir þrjár töfrandi lotur þar sem við leyfum tónlistinni og sérvöldum ilmum úr náttúrunni að hreyfa við okkur. Við kælum svo á milli undir beru lofti eða í sjónum fyrir þau sem vilja.
Þetta verður einstök stund á nýju tungli í merki Tvíburans, en Nýtt tungl í Tvíbura minnir okkur á samskipti og tengslin við aðra, en líka tengslin við okkur sjálf. Nú er best að huga að opinskáu og heiðarlegu samtali, hvort sem það er heiðarlegt innra samtal eða ásetningur um að eiga góð og opin samskipti við okkar besta fólk. Þetta verður líka stund til að rannsaka innra með sér ný markmið og að hugleiða hvaða skref við viljum taka næstu vikurnar til að láta þau markmið verða að veruleika.
Við setjum okkur ásetning í þessari stund og leyfum innsæinu að stýra ferðinni. Ég hlakka til að taka á móti ykkur.
Verið hjartanlega velkomin
Tinna
Bókið hér: https://book.sinna.is/sanuvagnmaeju/scheduled/services/154374
Og munið að taka með lítið handklæði að sitja á og fullan vatnsbrúsa. Verðum norðan við Nökkva og ekki með skipti/sturtu aðstöðuna svo mætið á sloppnum :)
Advertisement
Where is it happening?
600 Akureyri, Iceland, Akureyri, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.








