MÖNTRUKVÖLD Í LÍFSPEKIFÉLAGINU

Schedule

Thu, 20 Aug, 2026 at 08:00 pm

UTC+00:00
Location

Lífspekifélagið | Reykjav, RE

Advertisement
Velkomin á möntrukvöld í Lífspekifélaginu þann 20. ágúst kl. 20:00.
Eftir útgáfu plötunnar MÖNTRUR langar mig að bjóða okkur að koma saman á ný. Að fagna tónlistinni, ferðalaginu sem við höfum gengið saman og þeirri samveru sem hefur yljað okkur í gegnum árin.
Það skiptir engu máli hvort þú hefur komið áður eða ert að stíga inn í þetta rými í fyrsta sinn. Þú ert hjartanlega velkomin, velkominn eða velkomið.
Í þetta sinn verður hljómsveitin í nýjum búningi þar sem hlýir strengjatónar fá að leiða kvöldið áfram.
Hljómsveit kvöldsins:
Lára Rúnars – harmonium og gítar
Arnar Gíslason – slagverk
Þórdís Gerður Jónsdóttir – selló
Chrissie Telma Guðmundsdóttir – fiðla
Við hefjum kvöldið á bolla af seremóníal kakói frá Perú og leyfum okkur síðan að sökkva inn í möntrur, tónlist og sameiginlega nærveru.
Miðverð: 6.900.-
Skráning fer fram í gegnum [email protected].
Við hlökkum innilega til að vera með ykkur aftur.
Lára & co 🤍
Ljósmynd: Kolbrún Nadira
Advertisement

Where is it happening?

Lífspekifélagið, Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
L\u00e1ra \u221e M\u00f3ar
Host or PublisherLára ∞ Móar

Ask AI if this event suits you