Lárus Sigurðsson: Tónlist, tækni og tíðnir
Schedule
Fri, 27 Feb, 2026 at 07:00 pm
UTC+00:00Location
Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE
Advertisement
Í þessum fyrirlestri verður fjallað um hina dulspekilegu hlið tónlistarinnar í anda Rudolf Steiner.Tónlist snertir okkur öll á einn veg eða annan. Það er erfitt að finna manneskju sem hefur ekki gaman af einhver skonar tónlist. Auk þess er erfitt að ímynda sér veröldina án tónlistar
og það er næsta óhugsandi að við þekkjum einhvern sem hefur aldrei heyrt tónlist á ævi sinni.
Tónlistin vefur sig í gegnum listasöguna og tekur þar sífellt á sig ný form, strauma og stíla allt frá því menn tóku sér hljóðfæri og hófu upp raustina í árdaga og allt fram á okkar daga.
Tónlistin er alltumlykjandi og snertir okkur öll. Við leikum, syngjum og skreytum veröldina með tónum og umfram allt, þá hlustum við á tónlist og speglum okkur í veröld hennar. En hvað ertu tónlist og hvaðan komst þú?
Lárus Sigurðsson lauk burtfararprófi í klassískum gítarleik við
tónlistarskóla FÍH og hljóðfærasmíðar í anda Rudolf Steiner við Emerson College. Hann lauk meistaranámi í kennslufræðum við Listaháskóla Íslands og hefur starfað lengst af sem smíða- og tónlistarkennari á Sólheimum í Grímsnesi. Hann býr nú og starfar í Hveragerði.
-
Stúkan Dögun stendur fyrir þessum viðburði. Kaffi og meðlæti að erindi loknu.
Advertisement
Where is it happening?
Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavík, Iceland, Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.



















