Ljósufjallaganga Ferðafélags Snæfellsness með heitum potti og mat

Schedule

Sat, 29 Aug, 2026 at 09:00 am

UTC+00:00
Location

Ljósufjöll | Reykjav, RE

Advertisement
Laugardaginn 29. ágúst næstkomandi verður Ferðafélag Snæfellsness með göngu á Ljósufjöll, og rennur allur ágóði af göngunni í starf FFSN. Að lokinni göngu verður farið að Miðhrauni (Lava Resort) í hraunbaðið og því næst í kvöldmat.
Við hittumst klukkan 9:00 á upphafsstað göngu og búast má við 7-9 klukkustunda verkefni. Þetta er ganga sem hentar vönu göngufólki í góðu gönguformi. Gangan er 15-18 km og hækkun á göngu um og yfir 1000 m. Næst tindunum er gengið í landslagi sem þungt á fótinn. Ef veður og aðstæður leyfa verður reynt að ganga á alla þrjá tindana. Nauðsynlegt er að gengið sé í góðum gönguskóm með ökklastuðningi.
Nánari upplýsingar eru sendar í tölvupósti nokkrum dögum fyrir göngu.
Fararstjóri er Guðmundur Rúnar Svansson.
Gangan kostar kr. 18.500. Innifalið er fararstjórn, heitur pottur og kvöldmatur í Hlöðunni á Miðhrauninni. Skráning í ferðina með tölvupósti á netfangið [email protected]. Taka skal fram nafn þátttakenda, símanúmer og netfang. Takmarkaður fjöldi – fyrstur kemur, fyrstur fær!!!
Um þessa göngu gilda ferðaskilmálar og reglur Ferðafélags Íslands.
Advertisement

Where is it happening?

Ljósufjöll, Reykjav, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Fer\u00f0af\u00e9lag Sn\u00e6fellsness
Host or PublisherFerðafélag Snæfellsness

Ask AI if this event suits you