Lions Gate 8.8

Schedule

Sat, 08 Aug, 2026 at 11:00 am

UTC+00:00
Location

Sóleyjarhús | Reykjav, RE

Advertisement
Dagur sem nærir líkama, huga og sál.
Lions Gate – 8. ágúst
Lions Gate er talin ein af sterkustu orkudögum ársins – þegar ákveðin „hlið“ opnast milli hins sýnilega og ósýnilega.
Á hverju ári þann 8. ágúst (8/8) stillast sólin í stjörnumerkinu Ljóninu í línu við stjörnuna Sirius og jörðina. Þessi samstilling hefur í gegnum aldirnar verið tengd aukinni meðvitund, innsæi og andlegri vakningu.
Talan 8 táknar óendanleika, jafnvægi og kraft – og tvöföld 8 (8/8) magnar þá orku enn frekar.
Þetta er tími þar sem margir upplifa:
– skýrari sýn á líf sitt
– dýpri tengingu við hjartað
– aukið innsæi og innri leiðsögn
– losun á gömlum mynstrum og byrjun á nýjum kafla

Orkan sem fylgir Lions Gate er tengd hugrekki ljónsins – að stíga inn í sitt sanna sjálf, opna hjartað og leyfa ljósinu sínu að skína.
Ferðalag dagsins
Koma & opnun hrings
Við byrjum daginn í rólegri nærveru þar sem við hittumst sem hópur, jarðtengjum okkur og setjum fyrirætlun fyrir ferðalag dagsins.
Manifesting & markmiðasetning
Við vinnum með skýrar fyrirætlanir og opnum fyrir það sem við viljum rækta næstu mánuði. Með leiðsögn tengjumst við hjartanu og þeirri stefnu sem við viljum fylgja.
Leidd hugleiðsla
Við förum í mjúkt ferðalag inn á við þar sem kyrrð, innsæi og hjartatenging fá að leiða okkur áfram
Fasciuhreyfing – Flæði líkamans
Líkaminn geymir sögur, streitu og tilfinningar.
Með mjúkum og flæðandi hreyfingum vinnum við með bandvef líkamans (fasciu), öndun og líkamsvitund. Við mýkjum spennu, eflum hreyfanleika og sköpum rými fyrir meiri léttleika, tengingu og innra flæði.
Þegar líkaminn slakar á verður auðveldara að hlusta á innsæið.
Öndun og Tónferðalag
Ferðalag þar sem öndun, hljóð og kyrrð leiða þig inn í djúpa slökun, nærveru og innri tengingu.
Næring & kyrrð
Yfir daginn verður boðið upp á ferska ávexti, hnetur, te, kaffi og vatn svo þú getir haldið orkunni og notið dagsins í ró og næði.
Kvöldverður
Heimagerður kvöldverður útbúinn af Ingunni Rögnu:
Vegan steik
Sætkartöflusalat með chili, rauðlauk, kóríander og ristuðum furuhnetum
Ferskt salat með blómkáli, tómötum, rauðlauk, granateplum og fetaosti
Hvítlaukssósa
Sveppasósa
Einnig verður rými til að:
skrifa í vinnubók
njóta náttúrunnar
eiga rólega samveru
hvíla
eða einfaldlega vera í kyrrð.

Kakó- og eldceremonía
Þegar kvöldið færist yfir komum við saman í hjartatengingu.
Við deilum kakói, sleppum því sem við viljum skilja eftir og gefum nýjum ásetningi rými til að vaxa.
Við lokum deginum við eldinn með þakklæti, og fallegri athöfn sem markar endalok ferðalagsins


Upplýsingar
Staðsetning :Sóleyjarhús
Byrjar : kl 11:00- 21:00
Leiðbeinendur
Ingunn Ragna & Tinna Arnar
Verð. 29.900kr
Skráning 👇
https://tonar-lifsins.myshopify.com/products/lions-gate-8-8
Advertisement

Where is it happening?

Sóleyjarhús, Tungufell,Reykjavík, Iceland, Reykjav

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
T\u00f3nar l\u00edfsins
Host or PublisherTónar lífsins

Ask AI if this event suits you