Kynnumst & Tengjumst - Kvöld fyrir Konur
Schedule
Wed Oct 22 2025 at 07:00 pm to 09:00 pm
UTC+00:00Location
Rafstöðvarvegur 1a, 110 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE
Advertisement
Miðvikudaginn 22. okt frá kl. 19 - 21 verðum við með Kvöld fyrir Konur í Höfuðstöðinni. Kvöldið er ætlað konum frá aldrinum 25 ára og upp, sem langar að kynnast nýjum vinkonum og skapa tengingar. Á staðnum verða þema borð með fjölbreyttri skapandi afþreyingu þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi og því fullkomið tækifæri til að spjalla, hlæja og njóta kvöldsins saman. Verð per konu er 2.900kr.
Innifalið er einn Helgu bjór eða annar drykkur á barnum og afþreying.
Skráning er hafin á www.hofudstodin.is.
Drykkir eru í boði Helgu / Borg Brugghús.
--
Höfuðstöðin er lista- og menningarhús í gömlu kartöflugeymslunum í Elliðaárdalnum. Þar má finna kaffihús og bar með sólpalli og útileikföngum, gjafavöruverslun og sýninguna Chromo Sapiens eftir Hrafnhildi Arnardóttur / Shoplifter. Opið er virka daga frá kl. 12 - 18 og helgar frá kl. 11 - 17. Hægt er að leigja út Höfuðstöðina fyrir einkaviðburði og það eru skemmtilegar listasmiðjur fyrir börn og fjölskyldur alla laugardaga frá kl. 11 - 17 og á völdum frídögum.
www.hofudstodin.com
www.instagram.com/hofudstodin
www.facebook.com/hofudstodin
Advertisement
Where is it happening?
Rafstöðvarvegur 1a, 110 Reykjavík, Iceland, Rafstöðvarvegur 1, 110 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays: