Kvintett Mikaels Mána | Half Sun - útgáfutónleikar (IS)

Schedule

Sun Aug 30 2026 at 08:00 pm to 08:45 pm

UTC+00:00
Location

IÐNÓ | Reykjavík, RE

Advertisement
(English below)
Kvintett Mikaels Mána | Half Sun - útgáfutónleikar (IS)
Sunnudagurinn 30. ágúst | Iðnó
20:00
Kvöldpassi*
Fimmta breiðskífa Mikaels, Half Sun, mun koma út sumarið 2026 og verður sú tónlist í forgrunni á tónleikunum. Kvintett Mikaels Mána mun einnig flytja eldri lög frá fyrri plötum ásamt tökulögum í ferskum útsetningum. �
Kvintett Mikaels er skipaður Mikael Mána á gítar, Valdimar Olgeirsson á bassa, Magnúsi T. Elíassen á trommum, Lilju Maríu Ásmundsdóttur á metalafón og Tómasi Jónssyni á hljómborð. Þetta er ævintýraleg samsetning af hljóðfæraleikurum sem eru þekktir fyrir breiðan skala tónlistarstefna, frá popp-fusion til klassískrar samtímatónlistar. Hljómsveitin hefur ekki komið oft fram í þessari mynd og er því um sérstakan viðburð að ræða þar sem þau munu þræða plötuna sem þau tóku upp á síðasta ári.
Mikael er gítarleikari og tónskáld með einstakan og persónulegan stíl sem ekki er auðvelt að flokka. Tengsl hans við djass birtast helst í nálgun hans á hljóðfærið frekar en í skýrri tengingu við ákveðna stefnu eða kanónu. Í tónlistinni má greina áhrif frá norrænum sönglögum, rokktónlist, impressjónisma og ekki síst einstakan, kvikmyndalegan blæ.� Alþjóðlegir miðlar hafa lofað sérstakan stíl Mikaels og einlægan tónlistarflutning hans. Fyrri plata hans, Guitar Poetry, kom út í mars 2024 og er frumútgáfa hans fyrir þýska útgáfufyrirtækið ACT, eitt af leiðandi djassútgáfufyrirtækjum Evrópu. Platan hlaut 4,5 stjörnu dóm í DownBeat, einu virtasta djassriti síðustu áratuga.�
Mikael er fæddur og uppalinn í Reykjavík og hlaut verðlaun fyrir djassplötu ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir fyrri plötu kvintetts Mikaels, Innermost. Hann vakti fyrst verulega athygli með frumraun sinni Bobby (concept-plötu sem byggir á lífsreynslu hins umdeilda stórmeistara í skák, Bobby Fischers). Platan fékk spilun á BBC Radio 3 og 6, á íslenskum og frönskum ríkisútvarpsstöðvum, og vinsælasta lagið af plötunni hefur náð yfir 1.200.000 spilunum á Spotify. Önnur plata hans, Nostalgia Machine, kafaði enn dýpra í tónlistarheim hans.�
Mikael er hluti af nýrri bylgju íslenskra tónlistarmanna sem njóta alþjóðlegrar viðurkenningar, og verk hans endurspegla vel þann nýskapandi anda sem einkennir lifandi tónlistarsenu Íslands.�
“AN IMPRESSIONISTIC GEM.” ★★★★1⁄2 Downbeat(US)
Sunnudagur 30. ágúst
19:00 – Iðnó | Tu ha? Tu bjö! (IS)
20:00 – Iðnó | Mikael Máni quintet (IS)
21:00 – Iðnó | Anna Gréta, Silva & Ómar Guðjónsson (IS)
Kvöldpassi kostar 7.990 kr. í Iðnó en við bjóðum upp á afsláttarverð, 5.990 kr., fyrir þau sem kjósa lægra verð og sérstakt stuðningsverð fyrir velunnara hátíðarinnar, 8.990 kr.
////
Mikael Máni Quintet | Half Sun | Release Concert (IS)
Sunday August 30 | Iðnó
20:00
Evening pass*
The fifth album by Mikael Máni, Half Sun, will be released in the summer of 2026, and the music from that album will take center stage at these concerts. Mikael Máni’s quintet will also perform older works from previous albums, alongside cover versions in fresh new arrangements.
The quintet consists of:
Mikael Máni — guitar
Valdimar Olgeirsson — bass
Magnús Trygvason Eliassen — drums
Lilja María Ásmundsdóttir — metallophone
Tómas Jónsson — keyboards
This is an adventurous combination of musicians known for spanning a broad range of genres, from pop fusion to contemporary classical music. The ensemble has rarely performed in this exact formation, making the concert a special occasion in which they will revisit the album they recorded together last year.
Mikael Máni is a guitarist and composer with a distinctive and highly personal style that resists easy categorization. His connection to jazz lies more in his approach to the instrument than in any direct link to a particular style or canon. His music reveals influences from Nordic folk melodies, rock music, impressionism, and, above all, a uniquely cinematic atmosphere.
International media have praised Mikael’s distinctive style and sincere musical expression. His previous album, Guitar Poetry, was released in March 2024 and marked his debut release for the German label ACT Music, one of Europe’s leading jazz record companies. The album received a 4.5-star review in DownBeat, one of the world’s most respected jazz magazines.
Born and raised in Reykjavík, Mikael received the Icelandic Music Award for Jazz Album of the Year for the quintet’s previous release, Innermost. He first gained major attention with his debut album Bobby, a concept album inspired by the life of the controversial chess grandmaster Bobby Fischer. The album received airplay on BBC Radio 3 and BBC Radio 6 Music, as well as on Icelandic and French national radio stations, while the album’s most popular track has surpassed 1.2 million streams on Spotify. His second album, Nostalgia Machine, explored his musical world even further.
Mikael Máni is part of a new wave of Icelandic musicians receiving international recognition, and his work strongly reflects the innovative spirit that characterizes Iceland’s vibrant music scene.
“An impressionistic gem.” ★★★★½
— DownBeat (USA)
Sunday August 30
19:00 – Iðnó | Tu ha? Tu bjö! (IS)
20:00 – Iðnó | Mikael Máni quintet (IS)
21:00 – Iðnó | Anna Gréta, Silva & Ómar Guðjónsson (IS)
The evening pass costs ISK 7,990 at Iðnó. A reduced price of ISK 5,990 is available for those who choose a lower price, and a special supporter price of ISK 8,990 is offered for friends of the festival.
Advertisement

Where is it happening?

IÐNÓ, Vonarstræti 3, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Reykjav\u00edk Jazz Festival
Host or PublisherReykjavík Jazz Festival

Ask AI if this event suits you