Kyrrð - 4 vikna námskeið í Yoga Nidra • núvitund • innri ró
Advertisement
✨ FLÆÐI & HUGARRÓ KYNNIR: KYRRÐ ✨
Yoga Nidra • núvitund • innri ró
4 vikna námskeið
Hvenær gafstu þér síðast leyfi til að hægja alveg á?
Við lifum hratt. Hugurinn er oft á fullu, dagarnir þéttir og stundum gleymum við því einfaldlega að stoppa – anda og hlusta á okkur sjálf.
KYRRÐ er fjögurra vikna námskeið þar sem þú færð tækifæri til að stíga út úr amstri dagsins og inn í rólegt og nærandi rými.
Í hverjum tíma leggjum við áherslu á að hætta aðeins að gera og leyfa okkur að vera.
🌿 Með leiðsögn í Yoga Nidra færðu tækifæri til að:
• slaka djúpt á líkama og huga
• hægja á huganum og skapa meiri innri ró
• færa athyglina frá áreiti dagsins og inn á við
• tengjast líkamanum og eigin líðan betur
• æfa þig í meiri nærveru og núvitund
• gefa taugakerfinu tíma til að hvílast og jafna sig
• sleppa takinu á því sem þú þarft ekki að bera með þér
• gefa þér tíma sem er bara fyrir þig
Þú þarft ekki að kunna jóga eða hafa reynslu af hugleiðslu. Þú þarft ekki að vera „góð/ur í að slaka á“.
Þú kemur einfaldlega eins og þú ert.
🤍 Hvert kvöld byrjar á rólegri lendingu með tei eða kakói þar sem við gefum okkur tíma til að koma úr amstri dagsins.
Síðan tekur við Yoga Nidra – djúp, leiðsögn slökun þar sem þú liggur þægilega á dýnu og leyfir líkama og huga að hvílast.
✨ Þeim sem vilja gefst einnig kostur á að þiggja Reiki á meðan á slökuninni stendur.
Á námskeiðinu vinnum við með ákveðinn ásetning sem þú getur tekið með þér út í daglegt líf – eitthvað sem hjálpar þér að staldra við, hlusta inn á við og mæta sjálfum þér af meiri mildi og nærveru.
🌙 Kannski er þetta einmitt það sem þig vantar:
Að sofa betur.
Að ná niður streitunni.
Að finna meiri ró.
Að vera meira til staðar.
Að gefa huganum frí.
Eða einfaldlega að eiga eina stund í viku þar sem þú þarft ekki að gera neitt.
Þú þarft ekki alltaf að gera meira.
Stundum þurfum við bara að staldra aðeins við.
🤍 KYRRÐ er boð um að gera einmitt það.
📅 2., 9., 16. og 30. september
🕢 19:30–21:00
📍 Bolholt 4, 4. hæð
🌿 Aðeins 14 pláss í boði
Verð: 19.900 kr. fyrir öll fjögur kvöldin.
📩 Skráning: [email protected]
Greiðsla við skráningu tryggir þér sæti.
Edda Rún
Flæði & Hugarró
Advertisement
Where is it happening?
Bolholt, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Bolholt 8, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Event Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Host or PublisherFlæði & Hugarró








