Krossmiðlun 2025

Schedule

Thu Sep 11 2025 at 08:30 am to 01:00 pm

UTC+00:00

Location

Hotel Reykjavik Grand | Reykjavík, RE

Advertisement
Taktu daginn frá 🗓️
Forsöluverð til 3. september‼️
Krossmiðlun 2025 er ómissandi viðburður fyrir alla sem vinna við eða hafa áhuga á markaðsmálum og þróun vörumerkja. Í ár beinum við sjónum að vistkerfi vörumerkja – hvernig ný tækni, samfélagsbreytingar og menningarstraumar móta og umbreyta sambandi fólks við vörumerki.
Frá upphafi árið 2012, hefur Krossmiðlun verið vettvangur þar sem helstu sérfræðingar og hugsuðir markaðsheimsins deila innsýn sinni, þekkingu og framtíðarsýn. Dagskráin í ár er skipuð öflugum fyrirlesurum sem munu kynna ferskar hugmyndir og praktískar lausnir fyrir þau sem starfa við markaðsmál í heimi þar sem þróunin er hröð. Að lokinni dagskrá býðst þátttakendum að njóta léttra veitinga og skerpa tengslin 🎯
Krossmiðlun veitir kröftugan innblástur og sýn í heim stefnumótunar, hönnunar og markaðsmála. Þetta er viðburður sem þú vilt ekki missa af!
Dagskrá:
8.00 Húsið opnar
8.30 Morgunverður
9:00 Ráðstefna hefst
12.00 Hádegisverður, spjall og tengslanet
13.00 Ráðstefnu lýkur
Innifalið í verði er:
Morgunverður, kaffi, léttur hádegisverður, léttvín og bjór ☕️🍻
Fyrirlesarar eru:
👉 Matthew Moran, yfirmaður stefnumótunar í nýsköpun hjá OAG (Omnicom Advertising Group). Matthew Moran vinnur á mörkum tækni, menningar og mannlegrar hegðunar og finnur þar ný tækifæri fyrir vörumerki framtíðarinnar. Hans bakgrunnur liggur í hönnun, vörumerkjastefnu og upplifunarhönnun og hann hefur mótað stefnu fyrir heimsþekkt vörumerki á borð við Adidas, Airbnb, Amazon, Apple, Campari og Tourism New Zealand.
Á ráðstefnunni leiðir Matthew gesti í gegnum það hvernig breytileg hegðun, hröð tækniþróun og menningarstraumar eru að umbreyta sambandi fólks við vörumerki. Hann kynnir jafnframt hagnýtan ramma til að hanna sannfærandi og merkingarbæran vörumerkjaheim sem fólk vill kynnast, upplifa og tengjast.
👉Paula Sonne frá Eleven\TBWA í Finnlandi, sérfræðingur í áunninni fjölmiðlaumfjöllun (earned media).
Paula stýrir samskiptastofunni Eleven og er leiðandi afl í „earned-first“ nálgun TBWA, þar sem hugmyndaauðgi og samfélagsleg tenging skiptir mestu máli. Hún hefur átt stóran þátt í margverðlaunuðum herferðum á borð við The Polite Type, Keys for Peace og For MENstruation, sem hafa vakið heimsathygli og hlotið viðurkenningar af Cannes Lions, D&AD og Forbes. Á ráðstefnunni mun Paula fjalla um hvernig vörumerki geta skapað raunveruleg tengsl og vakið athygli, ekki með meira fjármagni, heldur djarfari hugmyndum og nálgun.
👉Sigurlína Ingvarsdóttir, meðstofnandi fjárfestingarsjóðsins Behold Ventures og stjórnarmaður í Festi.
Sigurlína hefur starfað við tölvuleikjagerð í fjórum löndum og er ein af stofnendum norræna fjárfestingarsjóðsins Behold Ventures, sem fjárfestir í frumkvöðlateymum í tölvuleikjaiðnaðinum. Hún hefur leitt þróun á sumum af stærstu tölvuleikjavörumerkjum heims, þar á meðal Star Wars Battlefront og EA Sports FIFA. Í erindi sínu mun Sigurlína fjalla um reynslu sína af því að starfa við þessi risavörumerki og hvað aðrir geirar geta lært af tölvuleikjaiðnaðinum, sérstaklega þegar kemur að nýsköpun, vörumerkjavistkerfum og félagslegum tengslum framtíðarinnar.
👉Ráðstefnustjóri er Bergur Ebbi Benediktsson
Sjáumst 11. september á Hótel Reykjavík Grand! 👋
Advertisement

Where is it happening?

Hotel Reykjavik Grand, Tesla, Sigtún 38, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Pipar\\TBWA

Host or Publisher Pipar\TBWA

It's more fun with friends. Share with friends

Discover More Events in Reykjavík

Iceland Fishing expo 2025
Wed, 10 Sep at 02:00 pm Iceland Fishing expo 2025

Laugardalshöll

BUSINESS EXHIBITIONS
Stefnum\u00f3tunardagur F\u00e9lagsr\u00e1\u00f0gjafaf\u00e9lags \u00cdslands
Thu, 11 Sep at 01:00 pm Stefnumótunardagur Félagsráðgjafafélags Íslands

Hilton Reykjavík Nordica (Reykjavík, Iceland)

Tilb\u00faningur: Stimplager\u00f0 | Fabrication: Stamp carving
Thu, 11 Sep at 03:30 pm Tilbúningur: Stimplagerð | Fabrication: Stamp carving

Borgarbókasafnið Árbæ | Árbær City Library | Hraunbær 119, 110 Reykjavík

ART
Kaktus Einarsson \u00e1 Kaffi Fl\u00f3ru
Thu, 11 Sep at 06:00 pm Kaktus Einarsson á Kaffi Flóru

Kaffi Flóra Garden Bistro

ENTERTAINMENT CONCERTS
Byrjendan\u00e1mskei\u00f0 \u00ed l\u00ednudansi - KickStart Country
Thu, 11 Sep at 06:00 pm Byrjendanámskeið í línudansi - KickStart Country

Bíldshöfði 10, Reykjavíkurborg, Ísland

\u00c1sgeir Trausti \u00ed Fr\u00edkirkjunni
Thu, 11 Sep at 06:00 pm Ásgeir Trausti í Fríkirkjunni

Fríkirkjan í Reykjavík

Fr\u00e1b\u00e6r fimmtudagur
Thu, 11 Sep at 06:30 pm Frábær fimmtudagur

Norðlingabraut 7, 110 Reykjavíkurborg, Ísland

Morgunfundur Svansins 2025
Wed, 03 Sep at 09:00 am Morgunfundur Svansins 2025

Norræna húsið The Nordic House

Krossmi\u00f0lun 2025
Thu, 11 Sep at 08:30 am Krossmiðlun 2025

Hotel Reykjavik Grand

SPORTS

What's Happening Next in Reykjavík?

Discover Reykjavík Events