Kristrún spjallar um Evrópumálin
Schedule
Thu Mar 12 2026 at 08:30 pm to 10:00 pm
UTC+00:00Location
Hallveigarstígur 1, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE
Advertisement
Samfylkingarfélagið í Reykjavík gengst í vetur fyrir spjallfundum um Ísland og Evrópusambandið, og eru haldnir stuttir fundir um það bil mánaðarlega með einum gesti eða tveimur.Nú hefur verið kynnt tillaga ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður, og er því við hæfi að næsti gestur okkar er Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar.
Fundurinn verður á fimmtudaginn, 12. mars, frá kl. 20.30 til um 22.00, á Hallveigarstíg 1 ‒ athugið breyttan tíma frá fyrri fundum.
Við spjöllum um væntanlega atkvæðagreiðslu, aðildarviðræðurnar sem vonandi fylgja í kjölfarið, viðhorf til Evrópu í samfélaginu og um verkefni Samfylkingarinnar fram að atkvæðagreiðslunni.
Áður hafa spjallað við okkur Magnús Árni Skjöld, formaður Evrópuhreyfingarinnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Dagur B. Eggertsson alþingismaður, Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ, og Þorsteinn Pálsson fyrrverandi þingmaður og ráðherra.
Allir félagar velkomnir ‒ og takið með ykkur gesti!
Advertisement
Where is it happening?
Hallveigarstígur 1, 101 Reykjavík, Iceland, Hallveigarstígur 1, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.



















