Ilmtónleikar Fischersunds
Schedule
Fri, 05 Jun, 2026 at 09:00 pm
UTC+00:00Location
Austurbæjarbíó | Reykjavík, RE
Rétt eins og tónlist byggir ilmgerð á samspili ólíkra tóna. Allt frá efstu tónunum til þeirra dýpstu, frá ferskum yfir í höfga, frá hverfulum yfir í langlífa. Þótt ilmgerð hafi verið í forgrunni hjá Fishersundi snýst hugmyndafræði þeirra um að skapa heildstæðan heim þar sem flest skilningarvit gesta eru virkjuð í gegnum lykt, hljóð og sjón. Ilmtónleikar Fischersunds eru einstök upplifun þar sem ilmur, tónlist og myndlist renna saman í sannkallað skynjunarferðalag sem kitlar nef, eyru og augu áhorfenda. Tónlistarmennirnir Jónsi úr SigurRós, Sin Fang og Kjartan Holm flytja tónverk sín sem endurspegla óefnislegan ilm Fischersunds, Ingibjörg Birgisdóttir vinnur myndbandsverk fyrir tónleikana og Lilja Birgisdóttir leiðir okkur í gegnum ævintýrið.
Tónleikarnir hefjast kl.21:00 þann 5. júní og húsið opnar kl.20:00.
Miðasala hefst kl.12:00 þann 26. mars <3
Where is it happening?
Austurbæjarbíó, Snorrabraut 37, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:



















