Hnefaleikaveisla í Gamla Bíó!
Schedule
Fri, 10 Apr, 2026 at 07:00 pm
UTC+00:00Location
Gamla Bíó | Reykjavík, RE
Advertisement
Sögulegur hnefaleikaviðburður í Gamla Bío! Á kvöldinu munu allir íslenskir atvinnuhnefaleikamenn stiga inn í hringinn ásamt rjómanum af því sem finnst í ólympískum hnefaleikum. Kolbeinn Kristinsson (19 - 0) berst sinn tuttugasta bardaga á ferlinum þegar hann mætir austurríska rotaranum Sasa Milenkovic (12 - 1) í átta lotu bardaga en sá austurríski hefur klárað 11 bardaga á ferlinum. Megum við því eiga von á alvöru átökum í Gamla Bíó þann 10. apríl. Hnefaleikadrottningin Valgerður Guðsteinsdóttir (7 - 8) verður næst síðust inn í hringinn á kvöldinu en hún hefur barist víða um heiminn, meðal annars á Wembley í Englandi og gegn Kanadískri stjörnu á UFC Fight Pass. Emin Kadri (3 - 0) munu einnig stiga inn í hringinn. Þetta verður fjórði bardaginn hans Emins á ferlinum en Emin er enn þá ósigraður eftir glæsilegar frammistöður í Mexíkó og víða annars staðar. Húsið opnar 18:30 og byrja fyrstu bardagarnir klukkan 19:00 með ólympískum boxurum í Eliteflokki áður en atvinnumennirnir taka við.
Advertisement
Where is it happening?
Gamla Bíó, Ingólfsstræti 2a,Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.








