Heiðurstónleikar - Linda Ronstadt 80 ára - Margrét Eir syngur lögin hennar Lindu

Schedule

Thu, 17 Sep, 2026 at 08:00 pm

UTC+00:00

Location

Bæjarbíó | Hafnarfjörður, GU

Advertisement
Af því merka tilefni að Linda Ronstadt fagnar 80 ára stórafmæli í sumar, slær Margrét Eir, ásamt hljómsveit og vel völdum gestum, til heiðurstónleika í Bæjarbíói, Hafnarfirði, þann 21. maí næstkomandi. Þar mun aðdáendum og tónlistarunnendum bjóðast einstakt tækifæri til að hlýða á flutning ódauðlegra perla Lindu þar sem tónlistar arfleifð hennar verður gert hátt undir höfði.
Linda Ronstadt er ein áhrifamesta söngkona sinnar kynslóðar, þekkt sem fjölhæf og tæknilega mögnuð listakona sem braut múra milli ólíkra tónlistarstefna. Meðal þekktustu laga hennar eru Blue Bayou, When will I be loved og You’re no good en í katalóg Lindu leynist fjöldi popp-, djass- og kántríslagara, ásamt söngleikjatónlist, ógleymanlegum ballöðum og stóru safni mariachi tónlistar sem hún notaði til að tengjast og heiðra sínar mexíkósku rætur.
Stjarna Lindu skein skærast á áttunda og níunda áratugnum en þá vann hún m.a. með stórstjörnum á borð við Aaron Neville, Eric Clapton, Neil Young, Dolly Parton og Emmylou Harris en platan Trio (með Parton og Harris) er talin ein merkasta útgáfa í bandarískri kántrítónlist. Linda var ötul við ýmiss konar tónlistarútgáfu, hefur selt tugmilljónir platna og unnið til fjölda Grammy verðlauna.
Stórsöngkonan Margrét Eir hefur í rúma þrjá áratugi heillað landsmenn með sinni kraftmiklu rödd, ótrúlegu hæfileikum og óneitanlegum sjarma en hún hefur fyrir löngu skipað sér sess sem ein okkar færasta söngkona. Eins og Linda, er Margrét fjölhæf tónlistarkona og hefur hún komið víða við með framlagi sínu til íslenskrar tónlistarmenningar. Margrét segist lengi hafa verið aðdáandi söngkonunnar og að lögin henti hennar rödd einkar vel. „Það er mér sönn ánægja að fá að flytja tónlistina hennar Lindu. Kraftmikil söngkona sem jafnframt hefur svo mikla næmni í túlkun. Hún syngur alltaf beint frá sálinni! Maður getur lært mikið af svona powerhouse konum„ - Margrét Eir
Hljómsveitina skipa:
Andrés Þór Gunnlaugsson gítar
Helgi Reynir Jónsson gítar/píanó
Hannes Friðbjarnarson trommur
Jökull Jörgensen bassi
Gísli Magna raddir
18 ára aldurstakmark.
Advertisement

Where is it happening?

Bæjarbíó, Strandgata 6, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Icon
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
B\u00e6jarb\u00ed\u00f3

Host or Publisher Bæjarbíó

Ask AI if this event suits you:

Discover More Events in Hafnarfjörður

U2 - hei\u00f0urst\u00f3nleikar \u00ed B\u00e6jarb\u00ed\u00f3i
Fri, 08 May at 08:00 pm U2 - heiðurstónleikar í Bæjarbíói

Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður, Iceland

Deep Jimi
Sat, 09 May at 08:00 pm Deep Jimi

Bæjarbíó

Hvanndalsbr\u00e6\u00f0ur
Fri, 22 May at 08:00 pm Hvanndalsbræður

Bæjarbíó

Bj\u00f6rk in Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur
Wed, 12 Aug at 03:00 pm Björk in Hafnarfjörður

Víðistaðatún

CONCERTS MUSIC
Hei\u00f0urst\u00f3nleikar - Linda Ronstadt 80 \u00e1ra - Margr\u00e9t Eir syngur l\u00f6gin hennar Lindu
Thu, 17 Sep at 08:00 pm Heiðurstónleikar - Linda Ronstadt 80 ára - Margrét Eir syngur lögin hennar Lindu

Bæjarbíó

MUSIC ENTERTAINMENT

What's Happening Next in Hafnarfjörður?

Discover Hafnarfjörður Events