Gömlu íslensku jólafólin hjá Ásatrúarfélaginu
Schedule
Sat, 20 Dec, 2025 at 02:00 pm
UTC+00:00Location
Menntasveigur 15, 102 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE
Advertisement
Dagrún Ósk Jónsdóttir og Jón Jónsson þjóðfræðingar á Ströndum rifja upp næstum því gleymdar sögur um íslensku jólafólin. Flestir þekkja gamlar og ljótar sögur um Grýlu sem var hryllileg mannæta og jólasveinana sem forðum voru til vandræða hvar sem þeir komu. Sumir í fjölskyldunni eru samt að mestu gleymdir eins og fyrri eiginmenn Grýlu og jólasveinar eins og Lungnaskvettir, Flórsleikir eða Flotnös.
Sagt verður frá óhugnanlegum sögum og þjóðtrú um Grýlu og hennar hyski. Sumt af því hentar varla mjög ungum börnum eða viðkvæmum sálum en öll sem þora eru hjartanlega velkomin!
Þau feðgin gáfu einnig út bók um efnið núna fyrir jólin sem ber yfirskriftina Gömlu íslensku jólafólin: fróðleikur og ljótar sögur, og verða með hana með sér.
Húsið opnar kl 14:00 og er öllum frjálst að mæta. Best að mæta tímanlega til að fá sæti.
Advertisement
Where is it happening?
Menntasveigur 15, 102 Reykjavík, Iceland, Menntasveigur 15, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.











