Ellen Kristjánsdóttir... & Hipsumhaps á Kaffi Flóru
Schedule
Thu, 21 Aug, 2025 at 07:30 pm
UTC+00:00Location
Kaffi Flóra Garden Bistro | Reykjavík, RE
Advertisement
Þann 21. ágúst næstkomandi snúa söngkonan Ellen Kristjánsdóttir og Hipsumhaps bökum saman á huggulegum tónleikum á Kaffi Flóru. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni …& Hipsumhaps þar sem kynslóðir sameinast í tónum og tali.„Ég keypti sófa á Bland í byrjun febrúar. Seljandinn var mjög almennilegur og þegar betur var að gáð reyndist hún vera ein af mínum eftirlætis söngkonum – Ellen Kristjánsdóttir. Ég hafði aldrei hitt hana áður, en við spjölluðum heillengi um lífið og tilveruna. Það er mér mikill heiður að fá að koma fram með henni á þessum tónleikum.“
- Fannsi, Hipsumhaps
Hljómsveit kvöldsins skipa:
Ellen Kristjánsdóttir – söngur
Fannar Ingi Friðþjófsson – söngur og gítar
Kristinn Þór Óskarsson – gítar
Tómas Jónsson – hljómborð
Við hlökkum til að njóta kvöldsins með ykkur. Tryggið ykkur miða hér á Tix.is.
Hlekkur á miðasölu:
https://tix.is/event/20007/ellen-kristjansdottir-hipsumhaps
Advertisement
Where is it happening?
Kaffi Flóra Garden Bistro, Grasagarðinum í Laugardal,Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays: