Drulluhlaup Krónunnar

Schedule

Sat Aug 15 2026 at 09:30 am to 01:30 pm

UTC+00:00
Location

Varmá | Reykjav, RE

Advertisement
Nú er aldeilis tilefni til að draga skítugu fötin fram úr skápnum. Drullu- og hindrunarhlaup Krónunnar, Aftureldingar og UMFÍ fer fram í Mosfellsbæ laugardaginn 15. ágúst. Í hlaupinu vinnur fjölskyldan, saumaklúbburinn, vinahópurinn og húsfélagið að því að komast í mark í skítugasta hlaupi ársins. Viðburðurinn er fyrir alla fjölskylduna og/eða einstaklinga. Hér skiptir tíminn engu máli. Góða skapið og samhent gleði þarf til að komast í gegnum allar hindranirnar á leiðinni.
Áhersla er lögð á skemmtilega hreyfingu, gleði og samvinnu 💛
💦 Hvar: Íþróttamiðstöðinni að Varmá, Mosfellsbæ.
💦 Dagsetning: Laugardagurinn 15. ágúst 2026.
💦 Hvenær: Kl. 09:30 - 13:30 (Ræst út í hollum á nokkurra mínútna fresti).
💦 Ráshópar: Við skráningu velur þú ráshóp með rástíma sem hentar þér.
💦 Hlaupaleið: Leiðin er samtals 3,5 km og inniheldur 21 hindrun.
💦 Upphaf og endir: Við Íþróttamiðstöðina að Varmá.
💦 Umsjón: Ungmennafélagið Afturelding ásamt UMFÍ.
Skráning í hlaupið fer fram á: www.netskraning.is/drulluhlaup-kronunnar/
Froðuvél verður á rássvæðinu fyrir yngstu börnin til að leika sér í. Þess vegna er upplagt fyrir foreldra og frænkur og frændur að koma með alla fjölskylduna og hvetja þátttakendur í gegnum skítverkið. Skolstöð verður á staðnum og frítt í sund fyrir alla þátttakendur 💦🤎
Hlaupaleiðin er drulluskemmtileg og krefjandi en öll 8 ára og 80 ára ættu að komast í gegnum hana með aðstoð foreldra og/eða forráðarmanna.. Leiðin er 3,5 km langur hringur í Varmárdalnum með fjölda stórskemmtilegra hindrana sem þarf að yfirstíga. Hægt er að hlaupa saman og hjálpast að við að komast í gegnum hindranirnar eða leysa saman þrautirnar.
Advertisement

Where is it happening?

Varmá, Skólabraut 2, 270 Mosfellsbær, Ísland, Reykjav, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Kr\u00f3nan
Host or PublisherKrónan

Ask AI if this event suits you