DANS HRINGRÁSANNA // konur í náttúrunni
Schedule
Thu, 28 May, 2026 at 08:00 pm
UTC+00:00Location
Sóleyjarhús | Reykjavík, RE
Velkomnar í dansferðalag þar sem við skoðum hringrásir lífsins í sínum ólíku myndum. Lífshjólið, höfuðáttirnar, tíðarhringinn, árstíðirnar, árið, mánuðinn, vikuna, daginn, andartakið.
Við hefjum ferð í VETRINUM. Kyrrð – myrkur – lífsneisti. Orkan mjúk, hæg, tregafull. Innsæið leiðir. Blæðingar. WISE WOMAN.
Ferðumst inn í VORIÐ. Allt vaknar. Nýtt líf. Hugmyndir. Aukin orka. Forvitni. Aðdáun. Follicular phase. Blæðingar klárast og orkan eykst. MAIDEN.
Úr vorinu dönsum við inn í SUMARIÐ. Allt springur út. Sýnir sig. Allt það sem við erum að skapa, hlúa að & byggja upp fær að raungerast. Egglos. MOTHER.
Endum í HAUSTINU inn í eftirgjöf, losun til umbreytingar. Mætum því sem er satt með dýpinu. Virkjum næmnina & hlustum. Luteal phase, fyrir blæðingar. WILD WOMAN.
Tónlistin styður við ferðalagið sem getur verið djúpt. Áður en dansinn byrjar mætumst við í hring með ceremonial cacao sem styður okkur og leiðbeinir í hringrásunum.
Verð: 5.900.-
Skráning: [email protected]
🌿 Lára & María leiða kvöldið
Lára er jógakennari, tónlistarkona og kynjafræðingur með menntun í sjamanisma og höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun.
María er dansari, sjúkraþjálfari, jóga nidra kennari og doula með menntun í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun. Hún elskar að halda rými þar sem fólk getur dýpkað tengslin við sjálft sig, náttúruna og lífið.
Láru og Maríu dreymir um að skapa heiðarlegt rými þar sem konur geta verið þær sjálfar. Þar sem þær geta tímabundið lagt frá sér hlutverkin sín, ferðast nær sér og eflt tengsl við sig sjálfar og aðrar konur.
Rými þar sem má vera glöð, þreytt, spennt, sorgmædd, hrædd, berskjölduð eða bjartsýn. Þar sem við göngumst við líðan okkar og tilfinningum og æfum okkur í að sýna sjálfum okkur og öðrum kærleika, hlustun og virðingu.
🌊 KONUR Í NÁTTÚRUNNI
Er lifandi viðburðaröð sem slær í takt við árstíðir og náttúru landsins: serimóníur, ævintýri úti í móa, í nánd við jörðina og fossana, svitahof og sjóböð, nærandi samvera með konum og ræktun innri tengingar, frelsis og sambandsins við jörðina.
Hugmyndin kviknaði árið 2022 hjá Maríu Carrasco og Láru Rúnarsdóttur, og síðan þá hafa þær haldið fjölbreytta viðburði, ævintýri og námskeið fyrir konur í náttúrunni.
Where is it happening?
Sóleyjarhús, Vonarstræti 4B, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
















