Bíótekið - Kieślowski: Tvöfalt líf Veroniku / Podwójne życie Weroniki / La Double vie de Véronique
Schedule
Sun, 15 Feb, 2026 at 07:00 pm
UTC+00:00Location
Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE
Advertisement
English below Tvöfalt líf Veroniku (1991) er töfrandi og tilfinningarík mynd eftir hinn goðsagnakennda leikstjóra Krzysztof Kieslowski. Myndin fjallar um tvær ungar konur, hina pólsku Weronikę og frönsku Veronique.
Hvorug veit af tilvist hinnar en þær deila óútskýrðri tengingu sem mótar líf þeirra á dularfullan hátt. Með ljóðrænu myndmáli, draumkenndri tónlist Zbigniew Preisner og einkennandi næmni byggir Kieślowski upp sögu um tilfinningalega innsýn í líf tveggja einstaklinga með einstaka tengingu sem mótast af óræðum örlögum beggja.
Kieślowski var einn virtasti leikstjóri Evrópu og er í dag þekktur fyrir tíleikinn Dekalog sem og Lita–þríleikinn, Bláan, Hvítan og Rauðan.
Tvöfalt líf Veroniku markar tímamót í ferli hans og sýnir einstakt vald hans á andrúmslofti og tilfinningadýpt.
Kvikmyndir Kieslowski, mynda ákveðið þema Bíóteksins þetta vorið og verða fjórar kvikmynda hans sýndar í samstarfi við Sendiráð Frakklands og Póllands á Íslandi.
English
Two parallel stories about two identical women; one living in Poland, the other in France. They don't know each other, but their lives are nevertheless profoundly connected.
Advertisement
Where is it happening?
Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland, Hverfisgata 54, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.










