Brák | Arngerður María og ítalska snemmbarokkið
Schedule
Sun, 31 May, 2026 at 08:00 pm
UTC+00:00Location
Salurinn Tónlistarhús | Kopavogur, GU
Advertisement
Á þessum tónleikum bregður Barokkbandið Brák sér á leik í kammerútgáfu og verða hljóðfæraleikarar 5 talsins. Þá verður frumflutt nýtt verk eftir Arngerði Maríu Árnadóttur tónskáld og verður því teflt saman við ítalska snemmbarokktónlist eftir Marini, Falconieri og Mealli. Á fyrri hluta barokk-tímabilsins var Ítalía miðstöð tónlistarlegrar nýsköpunar, þar sem ný tónlistarform, leikrænar hefðir, notkun nýrra hljóðfæra og nýrra hljóðfærasamsetninga voru áberandi. Á þessum tíma var lögð mikil áhersla á tilfinningalega tjáningu og nýstárlegar formgerðir, sem gerðu tónlistina dramatískari og tjáningarríkari. Það var þá sem tónskáld á borð við Marini, Falconieri og Mealli kynntu nýjar formgerðir og aðferðir við tónsköpun sem lögðu grunninn að þróun barokk-tónlistar á 17. öld.
Verk Arngerðar Maríu verður innblásið af þessum tíðaranda nýsköpunar, tilraunagleði tilfinningalegu tjáningu.
Tónleikarnir verða haldnir í Salnum í Kópavogi 31. maí kl: 20:00
Advertisement
Where is it happening?
Salurinn Tónlistarhús, Hamraborg 6,Kópavogur, Kopavogur, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.






