Borð fyrir einn
Schedule
Sat, 14 Feb, 2026 at 08:00 pm
UTC+00:00Location
Café Rósenberg, Vesturgötu 3 | Reykjavík, RE
Advertisement
Fjórtándi febrúar er dagur elskenda, bæði þeirra sem sjást og kyssa en líka þeirra sem þjást og missa. Mikið hefur verið samið og kveðið í tali og tónum um ástina en talsvert meira um ástarsorgina enda býður þjáningin upp á mun fleiri litasamsetningar en hamingjan. Brynhildur Björnsdóttir söngkona og Jökull Jónsson píanóleikari munu því fagna ástarsorginni á degi Valentínusar 14. febrúar og flytja nokkra vel valda hjartabrotssmelli. Þá verður einnig farið yfir nokkrar góðar aðgerðir til að komast yfir ástarsorgir og almennt reynt að kafa í fyrirbærið ást en svo heppilega vill til að Brynhildur er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í þeim efnum. Öll hjartanlega velkomin, hvort sem er eitt, tvö eða sjö, meðan húsrúm leyfir, til að fagna ástinni í öllum sínum myndum.
Miðar verða seldir við innganginn og er miðaverð 3500 krónur.
Advertisement
Where is it happening?
Café Rósenberg, Vesturgötu 3, Vesturgata 2B, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
















