Alþjóðlegur baráttudagur kvenna 2026 - Fredagsbar & fræðsla 💜
Schedule
Fri, 06 Mar, 2026 at 06:30 pm
UTC+01:00Location
Jónshús | Copenhagen , SK
Advertisement
FREDAGSBAR & FRÆÐSLA 💜Alþjóðlegur baráttudagur kvenna verður haldinn hátíðlegur í Jónshúsi föstudaginn 6. mars næstkomandi.
Líkt og undanfarin ár verður viðburðurinn haldinn hátíðlegur í samstarfi við kvennakórinn Eyju.
Gestafyrirlesarar að þessu sinni eru Elinóra Guðmundsdóttir stofnandi og ritstýra útgáfufyrirtæksisins Via og ein þriggja ritstjóra bókarinnar Hennar rödd og Kaja Sigvalda ljósmyndari bókarinnar. Þær munu segja frá gerð bókarinnar og útgáfu, ljósmyndaferlinu og ræða kvenréttindabaráttuna, inngildingu og það að vera af erlendum uppruna.
Hennar Rödd er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna og vann um daginn Íslensku bókahönnunarverðlaunin í flokki heildarhönnun bóka.
Örfáar bækur verða til sölu á viðburðinum, á 600 kr.
Kvennakórinn Eyja mun sjá um veitingar og hægt verður að kaupa bæði mat og drykkjarföng til styrktar kórastarfi þeirra.
Stefnt er á að halda svo fjörinu áfram í góðu glensi að viðburði loknum, enda mikilvægt að styrkja tengslanetið og hafa gaman saman.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Advertisement
Where is it happening?
Jónshús, Øster Voldgade 12, 1350 København K, Danmark, Copenhagen , DenmarkEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.






![Ankerstjerne [support: Alexander Oscar] \/\/ Poolen (UDSOLGT)](https://cdn-ip.allevents.in/s/rs:fill:500:250/g:sm/sh:100/aHR0cHM6Ly9jZG4tYXouYWxsZXZlbnRzLmluL2V2ZW50czcvYmFubmVycy9lNzZlMzNiMzRhZDJmNWVhNzBiMzQyNmM4YjJlOWQ5YjZhNWQ0N2Q4ZDBjYzRkZjU5ZGZlNTIwNDQ4ZmI1YWJmLXJpbWctdzEyMDAtaDYyOC1kY2VkZWFkOS1nbWlyP3Y9MTc3MjE3Nzg2MA.avif)












