Addams fjölskyldan

Schedule

Wed Apr 01 2026 at 08:00 pm to 10:00 pm

UTC+00:00

Location

Félagsheimilið á Hvammstanga | Saudarkrokur, AS

Advertisement
Leikflokkur Húnaþings vestra sýnir gamansöngleikinn Addams fjölskyldan um páskana 2026. Leikstjóri og þýðandi er Sigurður Líndal og danshöfundur er Benjamin Di'Ath. Addams fjölskylduna þekkja margir en þetta er engu að síður í fyrsta sinn sem söngleikurinn er sýndur á Íslandi.
Söngleikurinn, byggður á persónum The Addams Family eftir Charles Addams, snýst um það þegar Wednesday Addams gerir hið óhugsandi: hún verður ástfangin af alveg hreint „venjulegum“ strák, Lucas Beineke.
Hún lætur föður sinn, Gomez, lofa að segja Morticiu móður sinni ekkert – sem er álíka raunhæft og að biðja sprengju um að hvísla. Þegar foreldrum Lucasar er svo boðið í kvöldverð mætast tveir gjörólíkir heimar: sólskinsleg kurteisi Beineke-fjölskyldunnar og dásamlega dimmur veruleiki Addams-ættarinnar.
Leyndarmál springa, dramatík magnast og allt fer úr böndunum með söng og svörtum húmor. Að lokum snýst sagan þó um ást, traust og að samþykkja að það sem er „eðlilegt“ er bara afstætt – sérstaklega þegar fjölskyldan þín elskar myrkrið.
Þetta er fjórði söngleikurinn sem Leikflokkur Húnaþings vestra setur upp en í ár eru tíu ár síðan fyrsti söngleikurinn Súperstar var sýndur. Ekkert er slakað á í framsetningu, frekar en í hinum söngleikjauppfærslunum, en þess má geta að árið 2019 var uppfærsla leikflokksins á Hárinu valin athyglisverðasta áhugaleiksýning af Þjóðleikhúsinu.
Sýningadagar eru 1. apríl, 2. apríl (Skírdagur) , 4. apríl og 6. apríl (Annar í páskum).
Advertisement

Where is it happening?

Félagsheimilið á Hvammstanga, Klapparstíg 4,Hvammstangi, Saudarkrokur, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Icon
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Leikflokkur H\u00fana\u00feings vestra

Host or Publisher Leikflokkur Húnaþings vestra

Ask AI if this event suits you:

Discover More Events in Saudarkrokur

P\u00e1ska bj\u00f3r bing\u00f3
Thu, 02 Apr at 08:30 pm Páska bjór bingó

Húnabraut 4, Blönduós, Iceland

BINGO
P\u00e1skam\u00f3t og stu\u00f0ningsmannakv\u00f6ld
Fri, 03 Apr at 10:00 am Páskamót og stuðningsmannakvöld

Skagfirðingabaut, 550 Sauðárkrókur, Iceland

P\u00e1skam\u00f3t P\u00edluf\u00e9lags Hvammstanga 2026
Fri, 03 Apr at 06:00 pm Páskamót Pílufélags Hvammstanga 2026

Klapparstígur 4, 530 Húnaþing vestra, Ísland

P\u00e1skakv\u00f6ld K\u00f6rfuknattleiksdeildar Tindast\u00f3ls
Fri, 03 Apr at 09:00 pm Páskakvöld Körfuknattleiksdeildar Tindastóls

Kaffi Krókur

Addams fj\u00f6lskyldan
Wed, 01 Apr at 08:00 pm Addams fjölskyldan

Félagsheimilið á Hvammstanga

P\u00e1skakv\u00f6ld K\u00f6rfuknattleiksdeildar Tindast\u00f3ls
Fri, 03 Apr at 09:00 pm Páskakvöld Körfuknattleiksdeildar Tindastóls

Kaffi Krókur

What's Happening Next in Saudarkrokur?

Discover Saudarkrokur Events