Í Aðdraganda Jóla

Schedule

Sat, 19 Dec, 2026 at 08:00 pm

UTC+00:00
Location

Borgarneskirkja | Reykjav, RE

Advertisement
Soffía ásamt jólahljómsveit verða með sína árlegu jólatónleika í Borgarneskirkju þann 19. desember kl 20.
Flutt verður dagskrá sem samanstendur af nýjum og eldri jólalögum eftir Soffíu sem og þessum gömlu góðu sem allir kannast við.
Á ferli sínum hefur Soffía tekið þátt í fjölbreyttum tónlistarverkefnum. Ásamt því að vera meðlimur í bluegrass-sveitinni Brother Grass sem gaf m.a. út plötuna Jól, hefur sólóferill hennar blómstrað.
Tónlist hennar spannar allt frá nýjum útgáfum af eldri lögum til frumsaminna verka og samstarfsverkefna.
Þar á meðal er lagið I Lie, sem fékk mikla athygli í útvarpi og líka fyrir tónlistarmyndband lagsins og Bonafide sem hún söng með Krumma Björgvins. Einnig má nefna útgáfu hennar á lagi sem amma hennar, Soffía Karlsdóttir gerði frægt, Það er draumur að vera með dáta, í nýrri útgáfu sem ber heitið Draumur að fara í bæinn, auk lagsins yfir Regnbogabrúnni þar sem hún samdi nýjan texta við lagið Over the Rainbow fyrir Háskólann á Bifröst.
Soffía hlaut nafnbótina Listamanneskja Borgarbyggðar 2026.
Hljómsveit:
Fríða Dís Guðmundsdóttir, söngur og bassi
Birgir Þórisson, píanó
Kristín Birna Óðinsdóttir, bakraddir
Miðasala : tix.is / posi við inngang.
Hlökkum til að sjá ykkur í Borgarneskirkju - í Aðdraganda Jóla.
Advertisement

Where is it happening?

Borgarneskirkja, Borgarnes, Reykjav, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Soff\u00eda
Host or PublisherSoffía

Ask AI if this event suits you