Ást á íslensku
Schedule
Fri Mar 20 2026 at 05:30 pm to 07:00 pm
UTC+01:00Location
Jónshús | Copenhagen , SK
Advertisement
Áður en Valentínusarrósirnar hafa visnað… fær ástin aukalag.
House of Johnny býður upp á órafmagnaða tónleika, sem upptakt að góðri helgi:
„Ást á Íslensku“
Við flytjum alíslensk ástarlög í okkar eigin útsetningu. Lögin um það sem var, það sem er… og það sem hefði kannski getað orðið, lög sem allir ættu að þekkja.
House of Johnny skipa:
Ágúst Óskar Gústafsson — gítar og píanó
Sandra Gunnarsdóttir — söngur
Smári Þorsteinsson — slagverk og söngur
Grétar Ingi Grétarsson — kontrabassi
Komdu með þann sem þú elskar, þann sem þú saknar, eða bara sjálfan þig. Við bjóðum upp á glas af búbblum og skálum fyrir þér og fyrir ástinni!
Taktu daginn frá, miðasala auglýst síðar!
Advertisement
Where is it happening?
Jónshús, Øster Voldgade 12,Copenhagen, Copenhagen , DenmarkEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.



















