X 97.7 kynnir: OASIS Heiðurstónleikar

Schedule

Sat Nov 14 2026 at 09:00 pm to 11:30 pm

UTC+00:00

Location

Hafnarstræti 96, 600 Akureyri, Iceland | Akureyri, AU

Advertisement
X 97.7 kynnir:35 ár eru nú liðin frá stofnun bresku hljómsveitarinnar OASIS í Manchester á Englandi. Sveitin sendi frá sér sjö breiðskífur á árunum 1994 til 2008 en lagði upp laupana árið 2009 eftir röð atvika milli forsprakka sveitarinnar, bræðranna Liam og Noel Gallagher. Hljómsveitin kom saman á síðasta ári og hélt í tónleikaferðalag víðsvegar um heiminn og komust færri að en vildu, svo ekki sé minna sagt. Margir Íslendingar sátu uppi með sárt ennið, enda sveitin aldrei heldur spilað á Íslandi yfir ferilinn.
Hópur íslenskra tónlistarmanna og aðdáenda sveitarinnar hefur því tekið sig saman og hyggst flytja öll bestu lög sveitarinnar með stælum á Græna Hattinum á Akureyri, Silfurtunglinu í Austurbæ í Reykjavík og í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Verður allt lagt í sölurnar, hækkað vel í og sungið sig hása en þó, í mesta bróðerni þar sem nostalgía tíunda áratugarins flæðir í gegnum ærandi gítara og einstaka kvöldstund sem vottar þessari stórkostlegu sveit virðingarvott og tekur hattinn ofan.

Hljómsveitina skipa:
Daníel Hjálmtýsson - söngur/slagverk
Guðmundur Stefán Þorvaldsson - gítar
Hálfdán Árnason - bassi
Heiðar Örn Kristjánsson - söngur/gítar
Helgi Birgir Sigurðsson - trommur
Helgi Rúnar Gunnarsson - gítar
Jón Ingimundarson - hljómborð
Nú er að finna anorakkinn, Adidas skóna og Kangol hattinn og gíra sig
Forsalan hefst 10. apríl kl. 10.00 á grænihatturinn.is
Advertisement

Where is it happening?

Hafnarstræti 96, 600 Akureyri, Iceland, Hafnarstræti 96, 600 Akureyrarbær, Ísland, Akureyri, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Icon
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Gr\u00e6ni Hatturinn

Host or Publisher Græni Hatturinn

Ask AI if this event suits you: