Upprásin | Lindy Lin, Splitting Tongues og Jelena Ciric
Schedule
Tue Mar 10 2026 at 08:00 pm to 10:00 pm
UTC+00:00Location
Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE
Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík, Rás 2 og Landsbankann, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur. Upprásin fer nú fram þriðja árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi.
Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar.
Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.
LINDY LIN
Lindy Lin er tónskáld og listakona búsett í Reykjavík. Hún fluttist til Íslands frá Shanghai árið 2023 og hóf mastersnám í sköpun,
miðlun og frumkvöðlastarfi (NAIP) við Listaháskóla Íslands. Fyrsta
platan hennar, Her Insula, kom út árið 2023 í Shanghai. Hún stofnaði ásamt fleirum hávaðarokksveitina Yang Soup, hefur komið fram með Wet Flute Trio og starfað með listamönnum svo sem Örlygi Arnalds og Masaya Ozaki.
Hljóðheimur Lindy Lin er súrrealískur og afar persónulegur. Kínversk flauta, kassagítar, raddspuni, drunur, hljóð úr heimilistækjum, hávær og lágvær rafhljóð sem bjaga, teygja, hægja og hraða og draga hlustandann inn í afar sérstæðan og áleitinn heim.
SPLITTING TONGUES
Splitting Tongues spilar bræðing af grindcore, hardcore og goregrind. Hljómsveitin var stofnuð í mars 2024 með það markmið að spila hraða og ákafa tónlist. Splitting Tongues skipa Arnar Már Víðisson, Sindri Þór Atlason og Sigurður Már Gestsson.
JELENA CIRIC
Tónlistarkonan Jelena Ciric hefur heillað áheyrendur víða með sinni mögnuðu söngrödd, hlýjum og djúpum lagasmíðum og einstökum hæfileikum til að miðla sögum. Í tónlist hennar má greina áhrif úr ólíkum áttum, meðal annars frá Serbíu, þar sem Jelena fæddist, sem og frá Kanada þar sem hún ólst upp. Árið 2021 hlaut fyrsta stuttskífa Jelenu „Shelters One“ Íslensku tónlistarverðlaunin sem þjóðlagaplata ársins en Jelena var einnig tilnefnd sem söngkona ársins sama ár. Hún hefur hlotið samtals fimm tilnefningar til verðlaunanna.
Önnur stuttskífa Jelenu „Shelters Two“ (2023) var valin á langlista Íslensku tónlistarverðlaunanna og eitt lag af plötunni, „Inside Weather“ var tilnefnt sem lag ársins. „Shelters Two“ var einnig tilnefnd til Kraumsverðlaunanna árið 2023 og valin Söngvaskáldaplata ársins í Morgunblaðinu af Arnari Eggerti Thoroddsen og Árna Matthíassyni sem kölluðu tónlistina „töfrandi“ og „marglaga“.
Með Jelenu koma fram Karl Pestka á fiðlu og Margrét Arnardóttir á harmonikku.
***Vinsamlegast athugið að Gargan, sem upphaflega var auglýst á þessu kvöldi, kemur fram í Upprásinni 14. apríl nk.
--
This concert will feature Lindy Lin, Splitting Tongues and Jelena Ciric.
Harpa, in collaboration with the Reykjavík Music City, Rás 2 and Landsbankinn, is hosting Upprásin, a concert series dedicated to grassroots Icelandic music, across musical genres. Upprásin is now taking place for the third year in a row and a total of 27 bands will perform, three on each concert night.
Ticket prices are only 2000 kr. but it is possible to contribute a higher amount during the ticket sales process, which will go directly to the artists.
--
LINDY LIN
Lindy Lin (Lidong Lin) is an electroacoustic composer and audiovisual experimentalist based in Reykjavík. Blending cultural heritage with personal mediums, she creates immersive, tactile experiences using natural soundscapes, everyday objects. Her surreal, psychedelic compositions challenge societal imbalances related to identity and equality. After releasing her debut album Her Insula in Shanghai, she moved to Iceland in 2023 to pursue a Master’s in NAIP at the Iceland University of the Arts. Lindy has since been active in Reykjavík’s art scene—co-founding the noise rock band Yang Soup with Diego, Stirnir, and Vigfús, performing in Wet Flute Trio with Stirnir and Tumi, and collaborating with artists like Örlygur and Masaya. Her ongoing project Mirror Stage explores "her" topics with local female artists including Sóley Stefánsdóttir, Berglind, Sillus, Karólína, Ronja, and Ida.
SPLITTING TONGUES
Splitting Tongues plays a combination of grindcore, hardcore and goregrind. The band was formed in March 2024 with the goal of playing fast and intense music.
Splitting Tongues are Arnar Már Víðisson, Sindri Þór Atlason and Sigurður Már Gestsson.
JELENA CIRIC
Musician Jelena Ciric has captivated audiences around the world with her amazing singing voice, warm and deep songwriting, and unique storytelling skills. Her music draws influences from diverse backgrounds, including Serbia, where Jelena was born, and Canada, where she grew up.
In 2021, Jelena's debut album "Shelters One" won the Icelandic Music Awards for Folk Album of the Year, and Jelena was also nominated for Female Artist of the Year that same year. She has received a total of five nominations for the awards. Jelena's second album "Shelters Two" (2023) was longlisted for the Icelandic Music Awards, and one song from the album, "Inside Weather," was nominated for Song of the Year.
"Shelters Two" was also nominated for the Kraumur Prize in 2023 and was chosen as the Songwriter Album of the Year in Morgunblaðið by Arnar Eggert Thoroddsen and Árni Matthíasson, who called the music "magical" and "multilayered". Jelena is accompanied by Karl Pestka on violin and Margrét Arnardóttir on accordion.
****Please note that Gargan, that was in the initial line-up for this concert will perform on April 14 in Upprásin concert series.
Where is it happening?
Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:



















