Tuttugu ára afmælisár- Skapandi tónlistarstjórnun
Advertisement
Í tilefni tuttugu ára afmælisárs haustnámskeiða í skapandi tónlistarstjórnun er boðið uppá stjórnenda og kennaranámskeið sem lýkur með opinni og ókeypis tónlistarsmiðju fyrir almenning.
Dagana 29. og 30. ágúst næstkomandi verður haldið fróðlegt, skemmtilegt og dínamískt námskeið í skapandi tónlistarsjórnun fyrir tónlistarkennara, stjórnendur og alla þá sem vinna með tónlist á einn eða annan hátt.
Farið verður ofan í kjölinn á leikjum, æfingum og aðferðum sem auðvelda þér að stýra skapandi ferli ýmist í einkakennslu eða með hópum, auk þess sem áhersla verður lögð á að þátttakendur fái tækifæri til þess að spreyta sig á hönnun og stjórnun ferla.
Í tilefni af tuttugu ára afmælisári haustnámskeiða í skapandi tónlistarstjórnun, mun helginni ljúka með fjörmikilli fjölskyldusmiðju þar sem þátttakendur helgarnámskeiðsins munu sjá og taka þátt í stjórnun ferla með gestum.
Dagsskrá helgarinnar:
Laugardagur 29. ágúst
10.00-12.30 Kynning á þátttakendum, upphitunaræfingar, söngur og skapandi ferli.
13.15-16.00 Vinna með hljóðfæri, kryfjum ferlið, yfirfærum og aðlögum að mismunandi aðstæðum.
Sunnudagur 30. ágúst
10.00-12.30 Upphitunaræfingar, undirbúningur fyrir skapandi smiðju. Hópaverkefni, æfingarennsli og annar undirbúningur.
13.30-15.30 Ókeypis fjölskyldusmiðja, opin almenningi.
15.30-16.00 Endurgjöf og samtal
Námskeiðsgjald 40.000kr.-
Skráning fer fram á https://forms.office.com/r/YuZwSptiaU
Ath.Hægt er að sækja um styrki frá endurmenntunarsjóðum stéttarfélaganna.
Um leiðbeinandann:
Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths er tónlistarkona, kennari á háskólastigi og stjórnandi samfélagsmiðaðra tónlistarverkefna víðs vegar um Bretland, Evrópu, Bandaríkin og Asíu.
Sigrún er stofnandi, framkvæmdastjóri og listrænn stjórnandi MetamorPhonics sem er samfélagsmiðað tónlistarfélag. MetamorPhonics rekur einstök tónlistarverkefni fyrir fólk í bata eftir lífsbreytandi áföll og veikindi, þar með talið samfélag heimilislausara, í samstarfi við listastofnanir og háskóla í Bretlandi og á Íslandi. Sigrún er gestakennari við Listaháskóla Íslands og hefur stýrt sjálfstæðum námskeiðum fyrir tónlistarkennara og hljómsveitarstjóra í Reykjavík ár hvert síðan 2006. Sérsvið Sigrúnar er að leiða skapandi starf með viðkvæmum hópum fólks, sérstaklega á sviði geðheilbrigðis, endurhæfingar fullorðinna og með meðlimum heimilislausa samfélagsins. Í 12 ár var Sigrun fagstjóri Masters in Leadership meistaranámsins við Guildhall School of Music and Drama, þar sem hún er nú fagstjóri Social Arts Practice valgreina á BA og MA stigi við tónlistardeild.Sigrún var einn stofnfélaga og leiðbeinenda hins margrómaða Guildhall Connect, samfélagsmiðaðs verkefnis Guildhall Listaháskólans, sem hlaut The Queen's Award árið 2005. Hljómsveit Sigrúnar Korda Samfónía var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2022 og handhafi hvatningarverðlaunanna árið 2023. Árið 2025 varð Sigrún þess heiðurs aðnjótandi að hljóta The Keith Hutton Award frá The Worshipful Company of Educators í Bretlandi, fyrir frumkvöðlastarf og innblástur í kennslu í sviðslistum en Sigrún var tilnefnd til verðlaunanna af yfirstjórn Guildhall School of Music and Drama.
Sigrún trúir staðfastlega á mikilvægi þess að allir hafi tækifæri til tónlistariðkunnar og aðgengi að listum, og að listastarf sé það afl sem auðgi líf einstaklingsins og geri samfélögum kleift að koma saman, stuðli að umburðarlyndi, jákvæðni og samkennd.

Where is it happening?
Nýi tónlistarskólinn, Grensásvegur 3, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Event Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Host or PublisherSigrun Sævarsdottir-Griffiths, Music Leader