SÖGUGANGA með Pétri Ármannssyni – HÁTEIGSKIRKJA, BYGGINGARLIST OG UMHVERFI & kvöldverður í framhaldi
Schedule
Wed, 17 Sep, 2025 at 06:00 pm
UTC+00:00Location
Háteigsvegur 27-29, 105 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE
Advertisement
SÖGUGANGA – HÁTEIGSKIRKJA, BYGGINGARLIST OG UMHVERFI,og kvöldverður í framhaldi. Miðvikudaginn 17. september kl. 18
Í tilefni af 60 ára vígsluafmæli Háteigskirkju í Reykjavík bjóðum við upp á áhugaverða og skemmtilega fræðslugöngu ásamt kvöldverði í og við Háteigskirkju miðvikudaginn 17. september n.k. kl. 18. Safnast verður saman við Kjarvalsstaði kl. 18:00 þar sem Pétur H. Ármannsson, arkítekt og sviðsstjóri hjá Minjastofnun Íslands, fjallar um tilurð og arkítektúr kirkjubyggingarinnar. Gengið verður frá Kjarvalsstöðum að Háteigskirkju, hringinn í kringum byggingarnar þar og loks skoðum við kirkjuna innanverða og njótum fræðslu um form og tákn í byggingarlist og hönnun hennar. Að því búnu, um kl. 19:00, býðst þátttakendum að njóta kvöldverðar saman í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Þátttaka í viðburðinum, að kvöldverði meðtöldum, kostar 5000 kr. (ATH! Eitt verð með eða án kvöldverðar). Við óskum vinsamlegast eftir því að þátttakendur skrái sig í tíma, svo áætla megi fjölda þátttakenda í sameiginlegum kvöldverði.
Skráning í viðburðinn fer fram með eftirfarandi móti:
Greitt með millifærslu:
• Þátttakandi greiðir með millifærslu 5000 kr. inn á styrktarreikning Háteigskirkju:
Kt. 600169-3439 – Reikningsnúmer 0301-26-026001
• Þátttakandi sendir greiðslustaðfestingu með nafni (nöfnum ef greitt er fyrir fleiri en einn) á netfangið [email protected]
Eða
Greitt með greiðslukorti:
Ef fólk óskar eftir því að greiða með greiðslukorti:
• Senda staðfestingu á þátttöku á netfangið [email protected] og taka fram að greitt verði með greiðslukorti.
• Mæta um kl. 17:30 við Kjarvalsstaði þann 17. sept. og greiða þátttökugjaldið 5000 kr. með greiðslukorti fyrir gönguna (en starfsfólk Háteigskirkju verður þar með greiðsluposa við hönd).
Verið velkomin, hlökkum til að sjá ykkur.
Advertisement
Where is it happening?
Háteigsvegur 27-29, 105 Reykjavík, Iceland, Háteigsvegur 42, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays: