Sjómannadagurinn í Hafnarfirði 2026!

Schedule

Sun, 07 Jun, 2026 at 01:00 pm

UTC+00:00

Location

Hafnarfjarðarhöfn | Hafnarfjörður, GU

Advertisement
⚓️ Sjómannadagurinn engum líkur í Hafnarfirði ⚓️

Sunnudaginn 7. júní verður Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði með fjölbreyttri dagskrá sem heiðrar sjómenn og tengsl bæjarins við sjóinn.
Hafnarfjarðarbær hefur skorað á hvert hverfi fyrir sig að taka þátt í kappróðrinum þetta árið. Hvaða hverfi býr yfir öflugustu ræðurunum? Hvaða skipstjóri kemur fleyi sínu fyrst í höfn?
Já, það er margt í boði og vert að skipuleggja sig svo dagurinn verði fullkominn:
🔵 Morgunviðburðir
Kl. 8:00 – Fánar dregnir að húni á hátíðarsvæði við höfnina.
Kl. 10:00 – Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur við Hrafnistu.
Kl. 10:30 – Blómsveigur lagður að minnisvarða sjómanna við Víðistaðakirkju.
Kl. 11:00 – Sjómannadagsmessa í Víðistaðakirkju
Herjólfsgufan við Langeyrarmalir – Gufa og sjór í fullkomnu jafnvægi frá kl. 10:00 til 13:00.
🔵 Dagskrá við höfnina milli kl. 13:00–17:00
🐚 Kappróður – Spennandi keppni á höfninni frá kl. 13:00 til 14:00.
🐚 Sterkasti maður Íslands – Kraftakeppni við hafnarsvæðið frá kl. 13:00 til 16:00.
🐚 Skemmtisigling – Sigling í boði Hafnarfjarðarhafnar frá Óseyrarbryggju kl. 13:00–16:30.
🐚 Fiskasýning Hafró – Skoðaðu fjölbreytt lífríki sjávar við Háabakka.
🐚 Siglingaklúbburinn Þytur – Opið hús frá kl. 13:00 – 17:00 hjá klúbbnum við Strandgötu 88.
🐚 Kaffihlaðborð Kænunnar – Njóttu veitinga í Kænunni við höfnina.
🐚 Björgúlfur kallar – Kaffi, kökur og koddaslagur við Flensborgarhöfn.
🐚 „Viltu koma í sjómann?“ – Kraftakeppni við minnismerkið um veru Þjóðverja í Hafnarfirði.
🐚 Þyrla landhelgisgæslunnar – Björgunarsýning Landhelgisgæslunnar
🐚 Slökkviliðið við Fornubúðir með bíla og búnað frá kl. 13:30 – 15 – komdu og heilsaðu hetjunum okkar! Björnis mætir einnig á svæðið en hann verður á Sjómannasviðinu kl.15!
🔵 Skemmtidagskrá á Sjómannasviðinu frá kl. 13 – 16:30
Kynnir: Hreimur Örn Heimisson – söngvari, skemmtikraftur og gleðigjafi!
Kl. 13:00 – 🎸 DAS-bandið
Kl. 13:30 – 🎺 Lúðrasveit Hafnarfjarðar
Kl. 14:00 – 🧑‍✈️ Setning hátíðarinnar og heiðrun Sjómanna
Kl. 14:15 – 🎤 Hreimur tekur lagið
Kl. 14:30 – 💃 Dans Brynju Péturs!
Kl. 14:45 – 🏆 Verðlaunaafhending í kappróðri
Kl. 15:00 – 🐻 Björnis brunabangsi
Kl. 15:10 – 🎙️ Diljá Pétursdóttir
Kl. 15:40 – 🎭 Ragga Hólm
Kl. 16:00 – 🌊 VÆB
🔵 Verslun, sýningar og menning
Gallerí Múkki - FLUMBRA, fjelag hafnfirskra rithöfunda mun flytja ljóðadagskrá tileinkaða hafinu og sjómennsku. Lesin verða ljóð og kvæði eftir Örn Arnarson og önnur hafnfirsk skáld og rithöfunda, lífs og liðna.
Opið í SIGN
Byggðasafn Hafnarfjarðar – Ný sýning í Pakkhúsinu. Opið í Pakkhúsinu, Sívertsen húsinu og Beggubúð frá kl. 11 – 17
Hafnarborg – Nýjar sýningar. Opið frá kl. 12 – 17.
Veitingastaðir í næsta nágrenni – Fullt af kræsingum á Sjómannadaginn!
Gestir eru hvattir til að leggja bílum löglega í bílastæði nálægt viðburðasvæðinu eða í miðbænum og ganga eða taka strætó, því hafnarsvæðið er lokað fyrir bílaumferð á meðan á hátíðarhöldum stendur.
Salernisaðstaða er í Siglingaklúbbnum Þyt, Íshúsi Hafnarfjarðar, Ægi 220, Kænunni, við olíubryggjuna og Hafrannsóknastofnun.
Drónaflug er bannað á hátíðarsvæðinu.
⚓️ Nánari upplýsingar má finna á vef Hafnarfjarðarbæjar – hfj.is/sjomannadagur ⚓️
Komdu og njóttu dagsins með fjölskyldu og vinum við höfnina í Hafnarfirði!
Advertisement

Where is it happening?

Hafnarfjarðarhöfn, Garðavegur 5, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Icon
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6r

Host or Publisher Hafnarfjarðarbær

Ask AI if this event suits you:

Discover More Events in Hafnarfjörður

Sommerfest \/ Sumarh\u00e1ti\u00f0 in Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur
Sat, 06 Jun at 01:00 pm Sommerfest / Sumarhátið in Hafnarfjörður

Thorsplan

Fimleikaf\u00e9lagi\u00f0 Bj\u00f6rk 75 \u00e1ra!
Sat, 06 Jun at 06:00 pm Fimleikafélagið Björk 75 ára!

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði

Hj\u00e1lmar \u00e1 \u00c6gi 220
Sat, 06 Jun at 09:00 pm Hjálmar á Ægi 220

ÆGIR 220

Sp\u00e1kaffi \u00e1 D\u00e6inn
Sun, 07 Jun at 02:00 pm Spákaffi á Dæinn

Vinastæti 14, Garðabær, Iceland

Sumars\u00fdningar HRF\u00cd
Sat, 13 Jun at 09:00 am Sumarsýningar HRFÍ

Víðistaðatún

Rallycross 2.Umfer\u00f0
Sat, 13 Jun at 11:00 am Rallycross 2.Umferð

Krýsuvíkurvegur , 221 Hafnarfjörður, Iceland

V\u00edkingah\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed Hafnarfir\u00f0i 2026 - Vikingfestival in Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur 2026
Tue, 16 Jun at 11:00 am Víkingahátíð í Hafnarfirði 2026 - Vikingfestival in Hafnarfjörður 2026

Víðistaðatún

KIDS SPORTS
Hittaramessa Fri\u00f0rik D\u00f3rs 2026
Tue, 16 Jun at 07:30 pm Hittaramessa Friðrik Dórs 2026

Kaplakriki

Kristinn Sigmundsson master class
Mon, 22 Jun at 09:30 am Kristinn Sigmundsson master class

Strandgata 34, IS-220 Hafnarfjörður, Iceland

WORKSHOPS MUSIC

What's Happening Next in Hafnarfjörður?

Discover Hafnarfjörður Events