Salsaball & prufutími

Schedule

Thu Jul 02 2026 at 07:00 pm to 10:30 pm

UTC+00:00
Location

Hátún 6A, 105 Reykjavíkurborg, Ísland | Reykjav, RE

Advertisement
Kæru vinir.
Nú er ykkur boðið í partý!
Við ætlum að koma saman og skemmta okkur konunglega í Hátúni 6A, 2. hæð, þar sem suðræn og seiðandi stemning mun ráða ríkjum.
Kvöldið hefst klukkan 19:00 með ókeypis prufutíma fyrir þau sem eru forvitin um að prófa salsa í fyrsta sinn eða rifja upp gömul kynni.
Frá klukkan 20:00 tekur DJ Erna við stjórninni og heldur dansgólfinu lifandi fram á kvöld. Við verðum með skýra stefnu: fimm salsa lög á móti einu bachata lagi. Glöggir hafa þegar reiknað út að það jafngildir 83% salsa og 17% bachata.
Aðgangur er ókeypis, en þau sem vilja leggja sitt af mörkum til að hjálpa með húsaleigu og annan kostnað geta sett í baukinn eða millifært smá upphæð við komu. Það er vel þegið en alls ekki skylda.
Á staðnum verður eitthvað svalandi til að hjálpa okkur að halda vökvabúskapnum í lagi.
Hvort sem þú dansar salsa á hverjum degi, hefur aldrei stigið eitt einasta spor eða ert einfaldlega forvitin(n) um þessa skemmtilegu menningu, þá ertu hjartanlega velkomin(n). Taktu með þér vini, kunningja og nágranna – og segðu þeim að taka sína vini með líka.
Komdu og prófaðu, komdu og dansaðu, eða komdu bara og njóttu stemningarinnar.
Við hlökkum til að sjá ykkur á gólfinu!
🌴💃🕺
Dagskrá
19:00–19:50 Salsa prufutími
20:00–22:30+ Salsa Social
Hátún 6A, 2. hæð
Frítt inn – frjáls framlög vel þegin
Advertisement

Where is it happening?

Hátún 6A, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Hátún 6A, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.

Ask AI if this event suits you