Sakari stjórnar Blásarasveitinni

Schedule

Fri, 13 Nov, 2026 at 06:00 pm

UTC+00:00
Location

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre | Reykjav, RE

Advertisement
Hljómsveitarstjórinn Petri Sakari, fyrrum aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leiðir blásarasveit hljómsveitarinnar í afar fjölbreyttri efnisskrá þar sem allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Glæsilegt lúðragjall úr ballettónlist Paul Dukas setur tóninn áður en smellin og stríðnisleg tónlist Milhaud tekur við. Tónlist Stravinskíjs, sem tileinkuð er minningu Claude Debussys, er íhugult og hátíðlegt verk sem lýkur með kyrrlátum kóral. Enska tónskáldið Ruth Gipps var einstaklega fjölhæf og eftir hana liggur fjöldi verka, m.a. fimm sinfóníur. Sem óbóleikari hafði hún afar góða þekkingu á blásturshljóðfærum sem birtist í einstaklega fallegu verki fyrir 10 blásara þar sem hafið og ströndin leika aðalhlutverkin. Tónleikunum lýkur á kraftmiklu verki fyrir 24 blásara eftir eitt þekktasta tónskáld Finna á síðari árum, Magnus Lindberg. Í Gran Duo takast á tré- og málmblásarar þar sem tónblær hvors hóps fær að njóta sín til fulls.
Efnisskrá
Paul Dukas Fanfare pour précéder la péri
Darius Milhaud Dixtour
Ígor Stravinskíj Sinfóníur fyrir blásara
Ruth Gipps Seascapes
Magnus Lindberg Gran Duo
Hljómsveitarstjóri
Petri Sakari
Flytjendur
Blásarasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands
//
Conductor Petri Sakari, former principal conductor of the Iceland Symphony Orchestra, leads the Orchestra's wind ensemble in a program of diverse repertoire for everyone. A magnificent fanfare from Paul Dukas' ballet music sets the tone before Milhaud's cheeky and provocative Dixtour takes over. Next, a work by Stravinsky, dedicated to the memory of Claude Debussy, is a contemplative and solemn piece that ends with a serene chorale. English composer Ruth Gipps was exceptionally versatile and left behind a number of works, including five symphonies. As an oboist, she had an excellent knowledge of wind instruments, which is reflected in an exceptionally beautiful work for 10 wind players in which the sea and the beach play the main roles. The concert concludes with a powerful work for 24 wind players by one of the most well-known Finnish composers of recent years, Magnus Lindberg. In Gran Duo, woodwind and brass players collide, allowing each group's unique musical style to be fully enjoyed.
Program
Paul Dukas Fanfare pour précéder la péri
Darius Milhaud Dixtour
Igor Stravinsky Symphonies of Wind Instruments
Ruth Gipps Seascapes
Magnus Lindberg Gran Duo
Conductor
Petri Sakari
Performers
Iceland Symphony Wind Ensemble
Advertisement

Where is it happening?

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland, Reykjav

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Sinf\u00f3n\u00eduhlj\u00f3msveit \u00cdslands
Host or PublisherSinfóníuhljómsveit Íslands

Ask AI if this event suits you