Páskabrall í Osló
Schedule
Sun, 29 Mar, 2026 at 03:00 pm
UTC+02:00Location
Svenska kyrkan i Oslo | Oslo, OS
Advertisement
Verið hjartanlega velkomin að vera með í páskabralli í Osló þar sem sunnudagaskóli, leikur, skapandi verkefni og hugguleg samvera verða á boðstólnum sunnudaginn 29.mars. Páskabrallið verður haldið í sænsku Margareta kirkjunni í Osló. Við byrjum á barnakóræfingu kl 14:00 með Litla Laffí og svo höfum við hugljúfum sunnudagaskóla kl 15:00 í kirkjunni.
Íslendingafélagið í Osló verður með skemmtilegt páskabingó á staðnum og íslenskt nammi til sölu. Frábært að ná sér í smá íslenskt súkkulaði fyrir páskana.
Við ætlum að leika okkur með þema páskanna, þegar lífið sigrar dauðann!
Það verða fullt af skapandi og skemmtilegum verkefnum og stöðvum. Viltu blása úr eggi? Eða skreyta páskagreinar? Mála,líma og föndra eitthvað fínt? Eða bara spjalla við alla hina yndislegu Íslendingana sem mæta?
Það er svo gaman og gott fyrir sálina að stússa og bralla og búa eitthvað til!
Við hvetjum ykkur til að koma við, hitta aðra Íslendinga, spjalla, föndra og njóta samverunnar saman.
Verið hjartanlega velkomin til okkar.
Advertisement
Where is it happening?
Svenska kyrkan i Oslo, Hammersborgstorg 8B,Oslo, NorwayEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.











