Perlur Hornstranda

Schedule

Fri, 08 Jul, 2022 at 08:30 am to Tue, 12 Jul, 2022 at 02:00 pm

Location

Hesteyri - Old Doctor's House | Reykjavík, RE

Advertisement
Hornstrandavesenisferðin 2022 er á vestursvæði Hornstranda. Við siglum í Kjaransvík og hefjum göngu þar yfir í Fljótavík, , Rekavík bak Látur, Straumnesfjall, taka alla Aðalvíkina eða Látur, Miðvík, Sæból og Stað eiga viðkomu á Darra og enda á Hesteyri. Við eigum því eftir að sjá stórkostlegt útsýni, anda að okkur sögunni og skoða fjölmargar minjar um gamla tíma um leið og við dáumst að náttúrunni, blómskrúði, fossum og fjörum á þessu harðbýla en fallega svæði. Þetta er ferð með allt á bakinu í fimm daga sem skilur engan eftir ósnortinn.
Dagskrá:
8. júlí föstudagur Hlöðuvík - Fljótavík
Við komum saman á bryggjunni í Bolungarvík og siglum svo yfir í Hlöðuvík/Kjaransvík þar sem Álfsfellið tekur fagnandi á móti okkur. Eftir komuna á land þá leggjum við fljótlega af stað gangandi yfir í Fljótavík. Þar förum við um Almenningaskarð, Almenninga vestari og um Þorleifsskarð og hinn grýtta Þorleifsdal niður í átt að Fljótsvatni. Svo eru tveir möguleikar á tjaldsvæði. Fyrri staðurinn eru Glúmsstaðir og við förum þangað ef eitthvað er að veðri. Hinn möguleikinn er að tjalda við neyðarskýlið utan við Atlastaði við sjávarsíðuna. Þá þarf að ganga meðfram öllu Fljótavatni en hlíðin sú er oft frekar blaut og því mun reyna á skóna.
Vegalengd ef tjaldað er á Glúmsstöðum 13 km og 550 m hækkun – en ef tjaldað er við Atlastaði 16 km og 600 m hækkun.
9. júlí laugardagur Fljótavík - Látrar
Við yfirgefum Fljótavíkina og höldum upp Tungudalinn á Tunguheiði. Ofan af Tunguheiði sjáum við Aðalvíkina og komum svo að Látrum og setjum niður tjöldin. Stefnt er að því að fara svo í göngu síðdegis og fram á kvöld á Straumnesfjall með léttan poka og fara um Rekavík í bakaleiðinni. Þannig verður úr góður hringur.
Vegalengd Fljótavík – Látrar: 12,5 km og 500 m hækkun. Straumnesfjallshringur: 18 km og 500 m hækkun.
10. júlí sunnudagur Látrar -Sæból, Aðalvík
Eftir frágang að Látrum þá leggjum við í hann yfir í Miðvík og vöðum Stakkadalsósinn og Miðvíkurósinn. Þar stoppum við og förum jafnvel upp að tóftum bæjarins Neðri-Miðvíkur. Svo höldum við áfram í sandfjörunni að Hvarfnúp og þaðan í grýttri fjörunni og svo upp Tökin og eftir Hyrningsgötu í áttina að Sæbóli. Við munum hjálpast að upp Tökin. Þess ber að geta að það er fjara laust fyrir kvöldmat og það er þá í boði að fara hana um Posavog ef einhverjum líst ekki á Tökin. Tjöldum svo á tjaldsvæðinu á Sæbóli. Stefnt er á göngu á Darra um kvöldið, þar sem eru minjar frá stríðsárunum.
Vegalengd: Látrar – Sæból er ca 9 km og 60 m hækkun. Darri: ca 7 km og 500 m hækkun.
11. júlí mánudagur Aðalvík - Hesteyri
Þennan dag göngum við frá Sæbóli snemma dags og um gamlar götur yfir að Hesteyri. Að sjálfsögðu verður áð við kirkjuna á Stað og þaðan verður svo lagt á Sléttuheiði. Við sjáum niður að Sléttu sem hreppurinn heitir eftir og þaðan förum við með Nóngilsfjalli niður í Hesteyrarfjörð og endum á því að ganga meðfram sjávarsíðunni að Hesteyri. Vegalengd ca 15 km og hækkun 350 m.
Stefnt er á kvöldmat og morgunmat í Læknishúsinu og gistingu fyrir þá sem vilja. Þetta er óstaðfest og bætist við verð ferðarinnar.
Um kvöldið eða morguninn eftir munum við skreppa inn að gömlu hvalveiðistöðinni að Stekkeyri í Hesteyrarfirði. Vegalengd er 4 km og 50 m hækkun.
Þetta er krefjandi ganga með allt á bakinu og því þarf að æfa vel fyrir ferðina og búnaður þarf að standast veður á Hornströndum. Haldinn verður fundur í maí til að fara yfir það helsta sem skiptir máli varðandi búnað og annan undirbúning. Leiðsögn annast Einar Skúlason, stofnandi gönguklúbbsins Vesens og vergangs og Wapp - Walking app.
Lágmarksfjöldi í ferðina er 10 manns en hámarksfjöldi 20 manns.
Verð í ferðina er kr. 58.500
Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið afritið tengilinn og setjið í vafra, skráið ykkur inn og veljið þá gistingu sem passar, veljið greiðslufyrirkomulag og þá er allt klappað og klárt). Athugið að það er ekki í boði að bóka ferð með því að greiða einungis staðfestingargjald. Það er hins vegar hægt að dreifa greiðslum á nokkra mánuði og enginn vaxtakostnaður af slíkum ráðstöfunum í sportabler.
Ef þið lendið í vandræðum með sportabler þá er hægt að senda póst á [email protected] til að fá bankaupplýsingar vegna millifærslu.
Skilmálar
Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 8.000 og er hluti af verði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjald endurgreitt en hægt er að framselja bókunina til nýs farþega sem kemur inn og tekur sætið og fylgir þá staðfestingargjaldið með. Fargjald þarf að greiða að fullu a.m.k. 6 vikum fyrir brottför. Ef greiðsla hefur ekki borist innan settra tímamarka má búast við að ferðin verði seld öðrum.
Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:
Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.
Afbókun 20-8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 7-4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 3-0 dögum fyrir brottför: Engin endurgreiðsla.
Breytingar: Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka.
Tryggingar: Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að huga að tryggingarmálum og hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.
Advertisement

Where is it happening?

Hesteyri - Old Doctor's House, Læknishúsið,Westfjords, Iceland, Reykjavík

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Vesenisfer\u00f0ir
Host or PublisherVesenisferðir

Ask AI if this event suits you